Hvenær hefst þessi viðburður:
19. október 2015 - 20:00
Nánari staðsetning:
Hannesarholt

Í kjölfar Lekamálsins, svonefnda, lét forsætisráðherra þau orð falla að öll þjóðin þyrfti að draga lærdóma af málinu. Hverjir gætu þeir lærdómar verið? Á fundi rannsóknarverkefnisins, Hvað einkennir íslenskt lýðræði?, í Hannesarholti 19. október verður sjónum beint að samspili lýðræðis, stjórnmála og stjórnsýslu að þessu leyti. Hvaða ramma setja lögin? Er þörf á bættu siðferði þeirra sem fara með valdið? Hvaða leiðir á að fara? Hvaða meginatriði gilda í eftirliti með valdhöfum og hvaða leiðum búum við yfir til þess að draga stjórnvöld til ábyrgðar?
Framsögumenn verða:
- Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis
- Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dósent í opinberri stjórnsýslu og stefnumótun
- Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki
Ókeypis inn – allir velkomnir.