Hvenær hefst þessi viðburður:
23. október 2015 - 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 131

Hugrún Harpa Reynisdóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði. Heiti verkefnisins er Náttúrutengsl og umhverfisstjórnun: Mótun, upplifun og áhrifaþættir.
Lýsing á verkefni:
Umræða umhverfismála einkennist gjarnan af áherslu á mikilvægi þess að umhverfis-stjórnun og auðlindanýting sé unnin í sátt og samráði við það samfélag sem hún á að ná til. Til að svo verði hlýtur hvers konar kerfi umhverfisstjórnunar að þurfa að taka mið af félagslegum og menningarlegum skilningi á sambandi fólks og náttúru á hverjum stað. Í þessari rannsókn var eigindleg rannsókn gerð meðal íbúa í Öræfum í Austur-Skaftafellssýslu og var markmið rannsóknarinnar tvíþætt. Annars vegar að öðlast skilning á upplifun einstaklinga á tengslum sínum, mótun þeirra og mögulegum áhrifum náttúrutengsla á viðhorf og gildi samfélagsins. Hins vegar að kanna upplifun og viðhorf fólks til umhverfisstjórnunar. Tekin voru 11 viðtöl við jafn marga einstaklinga sem hafa lögheimili og fasta búsetu í Öræfum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að samband samfélags og náttúru hlýtur töluvert vægi meðal samfélagsins í Öræfum. Náttúrutengsl mótast í gegnum stöðug samskipti við hið náttúrulega umhverfi, allt frá æsku, og eru áhrif þeirra nokkur á viðhorf og gildi samfélagsins. Náin samskipti samfélags og náttúru stuðla að umhyggju íbúa fyrir náttúru. Viðhorf til umhverfisstjórnunar er almennt jákvætt; neikvætt viðhorf birtist þó til umhverfisstjórnunar samhliða upplifun fólks á því að ekki sé tekið tillit til sambands samfélags og náttúru við mótun slíkrar stjórnunar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna mikilvægi virkrar þátttöku almennings í tengslum við umhverfisstjórnun þar sem slík þátttaka stuðlar að innleiðingu sambands samfélags og náttúru í umhverfisstjórnun.
Leiðbeinendur verkefnisins voru dr. Gunnar Þór Jóhannesson, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild og dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis og auðlindafræði.
Prófdómari: Guðbjörg R. Jóhannessdóttir, aðjúnkt við LHÍ og nýdoktor við HÍ.