Hvenær hefst þessi viðburður:
15. október 2015 - 14:00 til 15:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Litla torg

Aðgengi er allskonar og í samhengi við nám á háskólastigi varðar það allt frá bílastæðum til námsbókanna sjálfra, viðhorfa og menningar. Á málþinginu munu nokkrir einstaklingar deila reynslu sinni af fjölbreyttum aðgengismálum í HÍ, ásamt því sem byggingastjóri háskólans fer yfir stöðu mála og kynnt verður nýleg athugun á aðgengi að upplýsingum um réttindi fatlaðra nemenda.
Þátttakendur verða Frida Adriana Martins, Ingólfur Aðalbjörnsson, Kári Auðar Svansson, Sigvaldi Sigurðarson, Steinar Björgvinsson, Steindór J. Erlingsson og stendur ráð um málefni fatlaðs fólks við HÍ fyrir málþinginu.
Boðið verður upp á táknmálstúlkun