Hvenær hefst þessi viðburður:
15. október 2015 - 11:40 til 12:20
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stakkahlíð H202

Rannsóknarstofa í þroskaþjálfafræðum og starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun stendur fyrir hádegiserindi um hlutverk mentora í háskólanámi. Nemendum á Menntavísindasviði gefst þess kostur að gerast mentor fyrir nemendur í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun. Í erindinu verður fjallað um mentoranámskeiðið, mentorahlutverkið út frá sjónarhorni diplómanema, mentora, samnemenda og kennara. Erindinu lýkur á opnum umræðum um hlutverk mentora í háskólanámi.
Boðið verður upp á táknmálstúlkun