
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir ver doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum, sem ber heitið: Hamingja og vellíðan á tímum efnahagsþrenginga á Íslandi. Happiness and mental wellbeing during an economic crisis in Iceland.
Andmælendur eru dr. Joar Vittersø, prófessor við Háskólann í Tromsø, og dr. Jón Gunnar Bernburg, prófessor við Félags og mannvísindadeild Háskóla Íslands.
Umsjónarkennari var dr. Arna Hauksdóttir, dósent við Læknadeild Háskóla Íslands. Auk hennar sátu í doktorsnefnd dr. Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, dr. Daníel Þór Ólason, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands, dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands og Felicia A. Huppert, prófessor emeritus við Cambridge-háskóla í Bretlandi.
Magnús Karl Magnússon, prófessor og deildarforseti Læknadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni.
Ágrip
Á síðustu árum hafa alþjóðlegar stofnanir hvatt þjóðir til að þróa áreiðanleg mælitæki til að meta vellíðan og safna slíkum upplýsingum á landsvísu til þess að nota megi vellíðan sem mælikvarða við opinbera stefnumótun.
Yfirmarkmið þessarar ritgerðar var að rannsaka áhrif efnahagshrunsins á Íslandi árið 2008 á hamingju og vellíðan og greina hvaða hópar koma verst og best út. Sérstök áhersla var lögð á að 1) kanna breytingar á hamingju fullorðinna frá árinu 2007 til 2009 út frá lýðfræðilegum og félagslegum þáttum; 2) skoða breytingar á hamingju unglinga milli áranna 2000 og 2010 út frá lýðfræðilegum þáttum og stuðningi frá foreldrum og 3) meta hvort sjö atriða vellíðanarkvarði gefi nákvæmari upplýsingar en eins atriðis hamingjumæling ásamt því að greina nánar breytingar á vellíðan Íslendinga frá 2007 til 2009.
Rannsóknin byggir á greiningum gagna úr langtímarannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga sem náði til 9807 einstaklinga á öllu landinu á aldrinum 18-79 ára. Svarhlutfall árið 2007 var 60,3% (5918 manns) og 4092 (77,3%) svöruðu aftur árið 2009. Einnig var unnið með fjögur gagnasöfn úr rannsókninni Ungt fólk sem endurspegla 83% af 14 og 15 ára unglingum á Íslandi árin 2000, 2006, 2009 og 2010.
Niðurstöður sýndu að hamingja og vellíðan minnkuðu hjá fullorðnum meðan hamingja jókst hjá unglingum. Unglingarnir vörðu meiri tíma með foreldrum sínum og vinnuvika fullorðinna var að jafnaði styttri eftir bankahrunið. Niðurstöðurnar gefa til kynna að góð félagsleg tengsl, gæði sambands við fjölskyldu og vini, ásamt tíma sem varið er með fjölskyldu, spái fyrir um hamingju og vellíðan á tímum efnahagsþrenginga.
Um doktorsefnið
Dóra Guðrún er fædd árið 1974. Hún lauk stúdentsprófi af eðlisfræðibraut frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1994, BS-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og kandídatsprófi í sálfræði við Háskólann í Árósum árið 2007. Dóra innritaðist í doktorsnám í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands árið 2013 en áður hafði hún unnið að doktorsverkefni sínu við Cambridge-háskóla í Bretlandi. Dóra starfaði hjá Lýðheilsustöð þegar hún hóf doktorsnám sitt en starfar í dag sem sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis. Dóra var kosin forseti Evrópusamtaka um jákvæða sálfræði árið 2014. Hún er gift Bóasi Valdórssyni sálfræðingi og eiga þau börnin Rósu Maríu 15 ára, Guðmund Ísak 11 ára og Evu Karítas 6 ára. Dóra Guðrún er dóttir Guðmundar Inga Leifssonar, fyrrverandi fræðslustjóra, og Elínar Einarsdóttur námsráðgjafa.