Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kennsluþróunardagur Heilbrigðisvísindasviðs

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. september 2015 - 13:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 103
Nemendur að taka próf í Háskóla Íslands.
Kennsluþróunardagur Heilbrigðisvísindasviðs fer fram föstudaginn 18. september frá kl. 13-16 í stofu 103 á Háskólatorgi.  Meginþema dagsins verður „ský“, þar sem kynntar verða lausnir og tækni sem auðvelda samtal og auka fjölbreytni í kennslu. Á dagskrá verða stuttar kynningar og vinnustofur þannig að gott er að hafa fartölvu meðferðis. Þátttakendur geta mætt á einstaka dagskráliði.
 
Dagskrá
13:00   Titanpad - kynning og vinnusmiðja 
13:30   Office 365 fyrir alla - kynning á möguleikum í kennslu og vinnusmiðja
14:00   Socratvie - stutt upprifjun og nýjungar
14:30   Kaffi og kruðerí
14:45   Icloud / Google drive - kynning á möguleikum í kennslu og vinnusmiðja
15:30   Pinterest borð - úrlestur mynda / skil á myndum - vinnusmiðja
15:45   Ugluhlaðborð - upprifjun og örkynning á helstu viðbótum - vinnusmiðja
 
Vinsamlegast skráið þátttöku ykkur á kennsluþróunardeginum á eftirfarandi vefslóð fyrir miðvikudaginn 16. september nk: https://ugla.hi.is/K2/eydublad.php?sid=135&fid=7325
 
Allir velkomnir.
 
Upplýsingar um forritin
 
Office 365
Starfsfólk og nemendur HÍ hafa aðgang að Office 365 vegna samninga RHÍ við Microsoft. Í því felst aðgengi að Office forritunum í öllum netttengdum tölvum án þess að hafa þau uppsett á sjálfri tölvunni. Office 365 getur auðveldað hverskonar samvinnu bæði þeirra sem eru innan kerfisins og utan t.d. við að deila/miðla efni og samvinnuskrif. Unnt er að nálgast skjöl í hvaða nettengdu tölvu sem er. 
 
TitanPad 
Opið frítt forrit sem gerir fólki (allt að 64 í einu) kleift að vinna á sama tíma í skjali og býður upp á spjallborð í leiðinni fyrir athugasemdir og skoðanaskipti.
 
Socrative 
Opið frítt forrit sem er öflugt prófa og verkefnaskila kerfi sem nýtist vel jafnt inni í kennslustofunni sem utan hennar. Gagnvirkni og stöðumat eru helstu kostir kerfisins í kennslu.
 
Icloud og google drive 
Góðar gagnageymslur, sem hægt er að bjóða aðgang að.
 
Pinterest 
Skemmtilegt tæki sem býður upp á endalausa möguleika varðandi myndir, t.d. í verkefnaskilum eða við úrlestur sýna í kennslu.
 
 
 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012