Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fyrsta tilraun til lausnar á dreifðri útgáfu verðlaunasafnandi Steinertrjáa verkefnisins

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. ágúst 2015 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 156
Háskóli Íslands

Niccolò G. Rossetti flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í tölvunarfræði. Heiti verkefnisins er Fyrsta tilraun til lausnar á dreifðri útgáfu verðlaunasafnandi Steinertrjáa verkefnisins.

Í verkefninu er fengist við hönnun og hermun á dreifðu reikniriti til lausnar á nýrri útgáfu af Verðlaunasafnandi Steinertrjáa verkefninu (e. Prize Collecting Steiner Tree, PCST), þar sem hnútar hafa reiknigetu og aðeins staðbundna samskiptagetu og upplýsingar um nágranna í neti. Aðferðin byggist á að rannsaka þær aðferðir sem eru nú þegar til fyrir miðstýrðu útgáfuna af PCST, s.s. nykrað heiltölubestunarreiknirit eftir Goemans og Williamson (GW), dreifð reiknirit fyrir minnstu spanntré (e. Minimum Spanning Tree, MST) og lágmörkun á Steinertrjám. Ekkert af eftirtöldum reikniritum aðlagast auðveldlega að dreifðum reikningum. Við kynnum nýja einfalda brjóstvitsaðferð byggða á MST og útfærða í sérstökum hermi í Python. Aðferðin tryggir ekki nálgunarstuðul á bestu lausn en skilar góðum niðurstöðum í viðmiðunarverkefnum sem birt hafa verið og var nálgunarstuðullinn innan við það sem GW reikniritið tryggir í nánast öllum tilfellum. Einnig var GW reikniritið útfært í dreifðri útgáfu. Python hermirinn fyrir dreifð reiknirit og reikniritið sjálft eru gefin út sem frjáls hugbúnaður.

Leiðbeinendur: Páll Melsted, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands og Helmut Neukirchen, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði-og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.

Prófdómari: Magnús Már Halldórsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012