Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynning á skiptinámi á nýnema- og stúdentadögum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
1. september 2015 - 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
102
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 500 háskóla um heim allan

Nýnemum og öðrum nemum gefst kostur á að kynna sér spennandi tækifæri á skiptinámi þriðjudaginn 1. september. Fulltrúar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta kynna möguleika á skiptinámi um allan heim, þá styrki sem í boði eru og hvernig umsóknarferli er háttað. Háskóli Íslands starfar með yfir 500 hundruð háskólum víða um heim og árlega taka fjölmargir nemendur hluta af námi sínu erlendis.

Kynningin er liður í dagskrá nýnema- og stúdentadaga vikuna 31. ágúst - 4. september og fer fram kl. 12:30-13:00 í stofu 102 í Gimli.

Skrifstofa alþjóðasamskipta verður með bás á Háskólatorgi á mánudeginum frá kl. 11.30-13.00. Þar veita fulltrúar skrifstofunnar upplýsingar um skiptinám.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012