
Shakiru Idrissa Kajugus flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í jarðfræði. Heiti verkefnisins er Geothermal Reservoir Evaluation Using Well Testing and Analytical Modelling - Case Example: Reykjanes Geothermal System, Iceland.
Ágrip
Verkefnið snýst um notkun mismunandi prófana jarðhitaborholna, og túlkun þeirra með einföldum líkanreikningum, við mat á jarðhitakerfum. Fjallað er um ádælingarprófanir sem framkvæmdar eru í borlok, blástursprófanir eftir að holur hafa hitnað til fulls og ferilprófanir í niðurdælingartilraunum. Einnig er fjallað um spár um þrýstingsbreytingar vegna vinnslu, sem reiknaðar eru með þjöppuðum geymislíkönum. Gögn frá jarðhitasvæðinu á Reykjanesi eru tekin sem sýnidæmi og er aðalniðurstaðan sú að niðurdæling þar þurfi að vera um 50% vinnslunnar til að sporna við frekari þrýstingslækkun og að niðurdælinguna megi skipuleggja þannig að kólnun vinnsluholna verði viðráðanleg.
Leiðbeinendur eru Guðni Axelsson og Sæunn Halldórsdóttir.
Prófdómari er Egill Júlíusson.