Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Rannsóknir á PKD nýrnasýki (Proliferative Kidney Disease) á Íslandi – Útbreiðsla og áhrif á villta stofna laxfiska.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. maí 2015 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, bókasafn.
Háskóli Íslands

Fyrirlesari: Fjóla Rut Svavarsdóttir, líffræðingur á Keldum.

PKD nýrnarsýki er alvarlegur sjúkdómur sem herjar á laxfiska. Hann veldur miklum bólgum í nýrum fiska og getur orsakað mikil afföll. Sjúkdóminum veldur smásætt sníkjudýr, Tetracapsuloides bryosalmonae (T.b.), sem er háð millihýslum, mosadýrum í ferskvatni, til að ljúka lífsferli sínum. Sjúkdómurinn var fyrst greindur á Íslandi árið 2008 en fyrir þann tíma er ekkert vitað hérlendis um sjúkdóminn. Þar sem uppkoma sjúkdóms af völdum T.b. er beintengd vatnshita, eru líkur á að með hlýnandi veðurfari síðust áratugi hafi myndast forsenda fyrir uppkomu sjúkdómsins á Íslandi.

Vorið 2013 hófst þriggja ára verkefni um PKD-nýrnasýki í íslensku ferskvatni. Seinni tvö árin eru hluti af meistaraverkefni Fjólu Rutar Svavarsdóttur. Fjóla Rut hóf meistaranám sitt á Tilraunastöðinni að Keldum haustið 2014 og hyggst í fyrirlestrinum segja frá helstu niðurstöðum fyrra verkárs.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012