Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Framleiðsla, hreinvinnsla og bindieiginleikar YKL-40

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. maí 2015 - 12:30 til 13:10
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 158
Unnur Magnúsdóttir

Ms. Unnur Magnúsdóttir, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, kynnir verkefni sitt til Meistaranáms í Lífefnafræði:

Erfðamengi mannsins tjáir sex protein sem tilheyra kítínasafjölskyldu 18, en af þeim hefur YKL-40 (CHI3L1) mest verið rannsakað. Prótein þetta bindur fásykrur úr kítíni (ChOS) með míkrómólar bindisækni, en brýtur kítín ekki niður. Auk bindisets fyrir kítín er vitað að YKL-40 getur einning bundið heparín og kollagen. Um líffræðilegt hlutverk YKL-40 er enn lítið vitað en helst hefur verið talið að starf þess tengist boðmiðlun ónæmiskerfisins, fósturþroskun og ummyndun vefja og millifrumuefnis. Þetta skiptir sérstaklega máli í sjúkdómsástandi þar sem bólgusvörun og ummyndun bandvefs á sér stað, svo sem í iktsýki, slitgigt, skorpulifur og mörgum sjúkleika af völdum krabbameins. Að jafnaði er alvarleiki sjúkdómsins beintengdur hækkuðum styrk YKL-40 í serumi. Um þessar mundir beinast rannsóknir á YKL-40 síður að því sem sjúkdómsgreiningarmerki og frekar að því sem meintu viðfangi til lækninga ýmissa sjúkdóma. Til að auka skilning á lífeðlisfræði próteinsins og lífefnafræðilegum ferlum sem að baki búa er áhugavert að rannsaka hæfni YKL-40 til að binda meinta bindla.

Í þessari rannsókn voru aðferðir til að fá hámarkstjáningu YKL-40 með histidínhala bestaðar með því að nota HEK293 frumur með innfærðu his-tag YKL-40 geni, ræktaðar á yfirborði. Hreinvinnsla með nikkelsúlu og heparínsúlu var prófuð. Heimtur hreins YKL-40 voru ekki í samræmi við magn YKL-40 í ræktunarvökvanum, mælt með ELISA-aðferð. Ef hins vegar nautgripafóstursermi (FBS) var ekki haft í ræktunarvökvanum bötnuðu heimtur verulega. Því var ályktað að í FBS væru þættir sem trufluðu hreinvinnsluna og að einungis YKL-40 úr frumurækt án FBS væri nothæft til vinnslu. Hreinunnið YKL-40 var notað í prófunum á bindingu próteinsins við heparín, og reyndist próteinið tengjast fast og magnbundið við kyrrsett heparín.

Leiðbeinendur: Dr. Hörður Filippusson, Prófessor Emeritus í Lífefnafræði, og
Dr. Jón M. Einarsson
Prófdómari: Dr. Finnbogi Rútur Þormóðsson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012