Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í eðlisfræði - Nzar Rauf Abdullah

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. maí 2015 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðarsalur
Nzar Rauf Abdullah

Laugardaginn 9. maí ver Nzar Rauf Abdullah doktorsritgerð sína í eðlisfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Holljóseindastýrð rafeindaleiðni um kerfi skammtapunkta og bylgjuleiðara (Cavity-photon controlled electron transport through quantum dots and waveguide systems).

Andmælendur eru dr. Michael Thorwart, prófessor við Háskólann í Hamborg, Þýskalandi, og dr. Einar Örn Sveinbjörnsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands.

Leiðbeinandi var dr. Viðar Guðmundsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands.
Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Andrei Manolescu, prófessor við Háskólann í Reykjavík, og dr. Chi-Shung Tang, prófessor við National United University í Miaoli á Tævan.

Dr. Hörður Filippusson, prófessor emerítus og staðgengill forseta Raunvísindadeildar, stjórnar athöfninni.

Ágrip af rannsókn

Í ritgerð Nzar Rauf Abdullah er lýst tímaháðum flutningi víxlverkandi rafeinda um tvívítt rafeindakerfi af takmarkaðri stærð. Um er að ræða staka skammtapunkta eða pör þeirra sem komið er fyrir í stuttum skammtavír. Einnig fjallar hann um kerfi skammtabylgjuleiðara. Rafeindakerfið er veiktengt ytri leiðslum, en sterklega tengt einum ljóseindahætti í rafsegulholi. Rannsóknirnar sýna að rafeindastraumur um kerfið er mjög háður upphaflegum fjölda ljóseinda í holinu og skautun þeirra.

Um doktorsefnið

Nzar Rauf Abdullah er fæddur 1983. Hann útskrifaðist með BS-gráðu í eðlisfræði frá Háskólanum í Sulaimani í Kúrdistan, Írak 2006, og lauk MS-gráðu í sömu grein frá Háskóla Íslands 2011.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012