Hvenær hefst þessi viðburður:
11. maí 2015 - 13:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 158

Ásbjörn Egilsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í byggingarverkfræði. Verkefnið nefnist Frumathugun á virkjun Múlaár í Gilsfirði.
Ágrip
Verkefnið felst í frumathugun á lítilli vatnsaflsvirkjun í Múlaá í Gilsfirði á suðaustanverðum Vestfjörðum. Raforkuöryggi á Vestfjörðum er það lægsta á landinu og mikilvægt er að auka raforkuframleiðslu innan fjórðungsins, m.a. með gerð lítilla vatnsaflsvirkjana. Hagkvæmasta lausn á virkjun Múlaár var fundin út frá kostnaði og áætlaðri meðalársorkuframleiðslu. Grunnhönnun var gerð á mannvirkjum og umhverfis- og samfélagsáhrif virkjunar metin út frá aðstæðum á virkjanasvæðinu. Möguleikar á tengingu virkjunar við dreifikerfi voru skoðaðir og minnkuð úttekt raforku af kerfi Landsnets, í aðveitustöð í Geiradal, áætluð. Virkjun Múlaár er samkeppnishæf við aðra orkukosti innan Vestfjarða en lágt raforkuverð veldur því að virkjun er ekki arðbær miðað við gefnar forsendur.
Leiðbeinendur: Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor og Birgir Jónsson, dósent.
Prófdómari: Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs hjá Landsvirkjun.