
MARK kynnir: Valdefling Döff - Rannsókn á áhrifum valdeflingar á hóp heyrnarlausra
Í fyrirlestrinum er fjallað um valdeflingu „döff“ en það er hugtak sem notað er yfir heyrnarlausa einstaklinga sem tilheyra sérstöku samfélagi og nota táknmál til samskipta. Döff út um allan heim eru líklegri til að vera valdminni en heyrandi og gegnum tíðina hafa döff samfélög upplifað kúgun af hálfu heyrandi valdhafa. Hugtakið valdefling er notað um hópa sem eru valdskertir á einhvern hátt og hefur verið áberandi innan þróunarfræðinnar síðastliðna áratugi. Fyrirlesturinn byggir á vettvangsrannsókn á valdeflingu döff fólks í Namibíu þar sem höfundur dvaldi árið 2012.
Fyrirlesarinn Iðunn Ása Óladóttir starfar sem táknmálstúlkur hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH). Hún er með BA gráðu í táknmálsfræði og -túlkun og MA gráðu í þróunarfræði frá Háskóla Íslands.
Öll hjartanlega velkomnin
MARK - Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna