Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Háskólahlaupið 2015

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. apríl 2015 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Skeifan
Háskóli Íslands
Hið árlega og sívinsæla Háskólahlaup fer fram miðvikudaginn 29. apríl kl. 16. Hlaupið er opið starfsfólki, stúdentum og velunnurum skólans. 
 
Níunda árið í röð er boðið upp á tvær göngu- og hlaupaleiðir, þrjá og sjö kílómetra, og 
á sjö kílómetra leiðinni gefst þátttakendum færi á að hlaupa með eða án tímatöku. Merkja þarf við hlaupaleiðina við skráningu sem fer fram á Uglu >Á döfinni 
 
 
Líkt og undanfarin ár er hlaupið ræst í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu en þar verður einnig stutt upphitun fyrir hlaupara. Liggur leið þeirra sem hlaupa sjö kílómetra kringum Reykjavíkurflugvöll en þriggja kílómetra leiðin liggur m.a. um Suðurgötu, Þorragötu og Njarðargötu.
 
 
Þátttökugjald er kr. 2.000 við skráningu í Uglu fyrir lok dags 27. apríl en skráningagjaldi fylgir glæsilegur Dri-Fit hlaupabolur. Eftir þann dag hækkar skráningargjaldið í kr. 2.500 og hægt verður að skrá sig á upplýsingaskrifstofu í anddyri Aðalbyggingar.
 
Þátttökugjald má greiða með peningum og debit/kredit-kortum á upplýsingaskrifstofu eða millifæra í heimabanka. Merkja þarf millifærslu: Háskólahlaup 2015 og senda tölvupóst á akh@hi.is. Bankaupplýsingar: Kt. 600169-2039, Reikningur 137-26-85. Framvísa þarf staðfestingu um millifærslu ásamt skilríkjum í afgreiðslunni.
 
Til að staðfesta þátttöku þarf að sækja bol og númer (fyrir tímatöku) á upplýsingaskrifstofu í Aðalbyggingu á eftirfarandi tíma:
28. apríl kl. 9 - 16
29. apríl kl. 9 – 13
 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012