
Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna á mæðradaginn, sunnudaginn 10. maí. Gengið verður frá Háskólatorgi þar sem íslenskir vísindamenn, sem þegið hafa styrki félagsins, kynna störf sín og íþróttaálfurinn sprellar með börnunum.
Húsið opnar kl. 10. Gangan hefst kl. 11.
Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini, með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða meðal annars seldir bolir og höfuðklútar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Jör og margnota innkaupapokar hannaðir af Sigurborgu Stefánsdóttur. Þá verður hlutavelta með glæsilegum vinningum.
Einnig verður gengið í Borgarnesi, Stykkishólmi, Ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Egilsstöðum, Seyðisfirði, Neskaupstað, Fáskrúðsfirði, Höfn, Vestmannaeyjum og Selfossi. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað verður að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is
Styrktarfélagið Göngum saman
Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Göngum saman er grasrótarfélag þar sem allir gefa vinnu sína og megináhersla er á að öll framlög einstaklinga renni óskipt í styrktarsjóð félagsins. Frá stofnun félagsins, haustið 2007, hefur um 50 milljónum verið úthlutað til íslenskra rannsóknaraðila á sviði brjóstakrabbameins og í haust er stefnt að því að 10 milljónir renni til vísindarannsókna. Göngum saman leggur áherslu á miklvægi hreyfingar til heilsueflingar og á vegum félagsins eru vikulegar göngur á nokkrum stöðum á landinu mestan hluta ársins.