Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Sveppasöfnun í Heiðmörk

Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. ágúst 2015 - 11:00
Staðsetning viðburðar: 
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Háskóli Íslands
Sveppir eru sælgæti en það er betra að þekkja þá góðu frá þeim vondu og eitruðu! Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, kennir okkur að þekkja matsveppi og aðferðir við að geyma þá og matreiða í fjörugri sveppagönguferð um Heiðmörkina. Ferðin tekur um 2 klst. og er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna.
Mæting kl. 11 á einkabílum að Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Áður en ekið er af stað í halarófu upp í Heiðmörk verður hálftíma fræðsla í Öskju.

Ferðin er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands um göngu- og hjólaferðir undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ sem hófst á aldarafmælisári skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna háskólans blandast saman í áhugaverðum ferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða níu talsins á árinu 2015 og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi háskólans og Ferðafélagsins.

-------------------------------------------------------------------

Næsta ferð:

Hjólafimi í borginni - laugardaginn 12. september
Brottför kl. 11 á hjólum frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Það er gaman að hjóla og það er gaman að leika sér. Nú sameinum við þetta tvennt og brunum eftir hjólastígum Reykjavíkur með þremur sprenglærðum heilsugúrúum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þau Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði,  Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði, og Sigurbjörn Árni Arngrímsson, prófessor í íþróttafræðum, ætla meðal annars að kenna okkur leiki, teygjur og æfingar og fræða okkur um íþróttanammi. Ferðin tekur um 2 klst. og er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012