
Fyrirlesari: Sigríður Hjartardóttir, líffræðingur á Keldum.
Kregða orsakast af Mycoplasma ovipneumoniae bakteríunni og veldur lungnasjúkdómi í sauðfé og geitum. Sjúkdómurinn einkennist af hósta, andnauð og mæði og herjar aðallega á ung dýr. Síðla hausts árið 2013 var sett á laggirnar rannsókn á lungnasjúkdómum í sauðfé að Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. Í samstarfi við MAST voru tekin sýni úr sauðfjárlungum með einkenni kregðu víðsvegar að af landinu og lagt mat á tíðni og útbreiðslu sjúkdómsins.
Á opnum fyrirlestri fimmtudaginn 30. apríl mun verða farið yfir stöðu rannsókna á sjúkdómnum og hvers má vænta af áframhaldandi rannsóknum.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:20 og er hann haldinn á bókasafninu á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.