Hvenær hefst þessi viðburður:
16. apríl 2015 - 15:00
Nánari staðsetning:
Háskólabíó - salur 1

Félag prófessora við ríkisháskóla heldur síðasta málfundinn með þeim Guðrúnu Nordal og Jóni Atla Benediktssyni í Háskólabíói, Sal 1, fimmtudaginn 16. apríl kl. 15. Starfsmenn og nemendur Háskóla Íslands eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.
Dagskrá:
15:00 Fundarstjóri setur fundinn.
15:02 Ávarp formanns Félags prófessora við ríkisháskóla.
15:10 Frambjóðendur til rektors gera grein fyrir afstöðu sinni til málefna vísinda og háskólamenntunar almennt og málefna Háskóla Íslands sérstaklega. Hver frambjóðandi hefur 25 mínútur.
16:00 Pallborðsumræður með frambjóðendum.
16:30 Léttar veitingar í lok fundar.