Hvenær hefst þessi viðburður:
16. apríl 2015 - 17:00 til 17:45
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Gimli 102

Á fundinum verður farið yfir skipulag námsins, fyrirkomulag kennslu og þær diplómunámsbrautir sem í boði eru. Hægt er að nálgast kynningarbækling VMV námsins hér: http://bit.ly/vmv_baeklingur
Viðskiptafræði með vinnu er góður kostur fyrir þá sem vilja sækja sér menntun í viðskiptafræði samhliða vinnu. Auk þess að geta sótt almenn námskeið sem kennd eru í viðskiptafræði stendur einnig til boða að ljúka 36 ECTS eininga diplómagráðum frá þremur ólíkum námsbrautum.
Diplóma námsbrautirnar sem í boði eru:
- Diplóma í stjórnun markaðsmála
- Diplóma í stjórnun og stefnumótun
- Diplóma í reikningshaldi og fjármálum
Skráning fer fram í gegnum tölvupóstfangið vmv@hi.is