Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Málstofa Lífvísindaseturs - Nauðsyn USPL1 fyrir viðgerð á tvíþátta DNA brotum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. apríl 2015 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Room 343
Háskóli Íslands

Málstofa Lífvísindaseturs verður haldin fimmtudaginn 16. apríl kl. 12:20-13:00 í stofu 343 í Læknagarði.

Dr.Þorkell Guðjónsson, nýdoktor á Læknadeild Háskóla Íslands mun fjalla um Nauðsyn USPL1 fyrir viðgerð á tvíþátta DNA brotum

Ágrip: Eitt af megin einkennum krabbameinsfrumna er óstöðugt erfðamengi. Þessi óstöðugleiki er talinn stafa af DNA skemmdum sem fruman nær ekki að meðhöndla. Til að koma í veg fyrir þetta ástand býr fruman yfir öflugu varnarkerfi sem skynjar og bregst við DNA skemmdum. Einstaklingar með stökkbreytingar í lykilgenum þessa kerfis, t.d. BRCA1 eða BRCA2, eru í aukinni hættu á að fá krabbamein. Hluti af mínu doktorsverkefni fólst í því að finna gen með hugsanlegt hlutverk í þessu viðbragðskerfi. Út frá þeim rannsóknum fann ég genið USPL1. Í þessum fyrirlestri mun ég kynna niðurstöður sem benda til þess að USPL1 sé nauðsynlegt fyrir viðgerð á tvíþátta DNA brotum, sem er ein alvarlegasta tegund DNA skemmda.

Erindið er á ensku og er öllum opið.

Nánar á heimasíðu Lífvísindaseturs.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012