Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Kostnaðarstjórnun í Silíkondeild Össurar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. desember 2014 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 158
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Háskóli Íslands

Áshildur Jóna Böðvarsdóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistarprófs í iðnaðarverkfræði. Verkefnið ber heitið Kostnaðarstjórnun í Silíkondeild Össurar.

Markmið verkefnis var að skoða birgðastjórnun og kostnaðarskiptingu Silíkondeildar Össurar, ásamt því að leita að tækifærum til umbóta. Framkvæmd var ABC greining út frá kostnaði, virði og framlegð, til samanburðar núverandi ABC greiningar Silíkondeildar. Þá var framkvæmd ný kostnaðarskipting á beinum og óbeinum framleiðslukostnaði Silíkondeildar og niðurstöður bornar saman við kostnaðarskiptingu Össurar. Einnig var yfirfarið BOM (e. bill of material) og ROM (e. route of material) fyrir tvær vörur.
Niðurstöður ABC greiningar leiddu í ljós að ABC flokkun Össurar er ekki samkvæmt skilgreiningu og ekki rétt miða við núverandi stöðu. Niðurstöður kostnaðarskiptingar á óbeinum kostnaði sýndi að um helmingur af óbeinum kostnaði Silíkondeildar ætti í raun að tilheyra öðrum deildum. Er þessi kostnaður talinn er í hundruðum milljóna króna. Niðurstöður kostnaðararskiptingar niður á vörur sýndu að þrátt fyrir að heildarkostnaður Silíkondeildar lækkaði, hækkaði kostnaður á um þriðjungi vara. Því má sjá að ný kostnaðarskipting hafði mikil áhrif á kostnað á vörum. Hinsvegar hafði hún lítil áhrif á ABC greiningu út frá kostnaði, en einungis lítill hluti færðust á milli flokka. Við yfirferð á BOM og ROM kom í ljós að ekki var til nákvæm skilgreining á hvað ætti að felast í þeim. Er hér um að ræða grunninn að öllum kostnaðarupplýsingum Össurar, upplýsingum sem notaðar eru við mikilvægar ákvarðanatökur. Er því mikilvægt að þær séu nógu nákvæmar til þess að þær leiði ekki til rangra ákvarðana.

Leiðbeinendur: Guðmundur Valur Oddsson og Rúnar Unnþórsson
Prófdómari: Ari Jónasson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012