Hvenær hefst þessi viðburður:
8. desember 2014 - 13:00
Nánari staðsetning:
Reykjavík

Námskeið Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum og Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr (RÁS) um fjölskyldumálefni.
KYNFERÐISOFBELDI GEGN BÖRNUM
Málsmeðferð réttarkerfisins og réttarvernd barna
Markmið námskeiðsins er að skoða meðferð mála um kynferðisbrot gegn börnum og samvinnu allra
þeirra mismunandi aðila innan réttarkerfisins sem koma að þeirri málsmeðferð. Lögð verður áhersla á gildandi löggjöf og þau meginsjónarmið sem ber að leggja til grundvallar við meðferð málanna. Fjallað verður um helstu ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, samnings Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun og misneytingu (Lanzarote-samnings) og leiðbeininga Evrópuráðsins um barnvænlega réttarvörslu.
Kennarar: Anni G. Haugen lektor við Félagsráðgjafardeild og
Hrefna Friðriksdóttir dósent við Lagadeild Háskóla Íslands.
Staður
Akureyri: 26. nóv. kl. 8.30-12.30. Lögreglustöðin, Þórunnarstræti 138, fundarsalur á 2. hæð.
Egilsstaðir: 3. des. kl. 9.-13.00.
Egilsstaðaskóli, fyrirlestrarsalur.
Reykjavík: 5. des. kl. 8.30-13.30.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, fundarsalur á 4. hæð.
Reykjavík: 8. des. kl. 13.00-17.00.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, fundarsalur á 4. hæð.
Tími: Alls 4 klst. hvert námskeið.
Verð: Kr. 5.000.- Innifalið í verði, kaffiveitingar og fræðsluritið:
Kynferðisofbeldi gegn börnum.
Málsmeðferð réttarkerfisins og réttarvernd barna.
Skráning nauðsynleg;
Skráning á námskeið, með dagsetningu, nafni, kennitölu, starfsstöð og heimilisfangi þátttakanda sem og greiðanda, sendist á thorhill@hi.is.