Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all 3012 articles
Browse latest View live

Meistarafyrirlestur: Downstream process design for microalgae - Feasibility study

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. ágúst 2013 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 129

Sindri Freyr Ólafsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í vélaverkfræði. Verkefnið ber heitið Downstream process design for microalgae - Feasibility study.

Margar tegundir smáþörunga hafa verið ræktaðar í gegnum tíðina en ræktunaraðstæður og framleiðsluferli geta verið mismunandi á milli verkefna. Þetta verkefni tekur fyrir hönnun á framleiðsluferli fyrir tvær tegundir af smáþörungum, Dunaliella salina og Chlorella vulgaris. Dunaliella salina varð fyrir valinu vegna hæfileika til mikillar β-karótín framleiðslu, ræktunin fer fram í ljóslífrænu hvarfrými (e. photobioreactor) undir sérstökum aðstæðum sem stuðla að auknum vexti og β-karótín framleiðslu.

MS nefnd: Sigurjón Arason, Sigurður Brynjólfsson, Björn Margeirsson, Hörður G. Kristinsson
Prófdómari: Sveinn Víkingur Árnason


Kynningarfundur fyrir nýnema í lýðheilsuvísindum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. ágúst 2013 - 12:00 to 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa 210

Kynningarfundur fyrir nýja meistaranema í Lýðheilsuvísindum.

Skóli á nýrri öld

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. september 2013 - 15:30 to 17:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Bratti
 
 
 
Málþing til heiðurs Gerði G. Óskarsdóttur sjötugri verður haldið föstudaginn 6. september 2013, kl. 15.30 – 17.00 í Bratta, fyrirlestrasal Menntavísindaviðs, við Háteigsveg í Reykjavík.
 
Gerður hefur verið leiðandi á svið skólamála hér á landi í marga áratugi og komið við á öllum skólastigum frá leikskóla og upp í háskóla. Horft verður til framtíðar á nokkrum af þeim sviðum þar sem Gerður hefur látið til sín taka.
 
 
 
 
 
 
 
Dagskrá:
 
  • Setning: Ragnar Þorsteinsson, sviðstjóri Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar
  • Framtíð íslenska menntakerfisins. Hvert er ferðinni heitið? Jón Torfi Jónasson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
  • „Fordómalaus og vönduð persónuleg ráðgjöf við einstaklinga getur skipt sköpum.“ Af brautryðjanda í náms- og starfsráðgjöf og fræðslu. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor við Félagsvísindavið Háskóla Íslands
  • „What a wonderful world.“ Hilmar Hilmarsson, skólastjóri Réttarholtsskóla
  • Að breyta hinu óbreytanlega. Undirbúningur og hönnun Ingunnarskóla í Grafarvogi. Anna Kristín Sigurðardóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
  • Baksýnisspegillinn - dagskrárlok
 
Að loknu málþingu samfögnum Gerði á þessum tímamótum yfir léttum veitingum
 
Þátttökugjald, kr. 1000.- Vinsamlegast skráð ykkur hér
Gjaldið má greiða með því að leggja inn á þennan reikning: 0137-26-476. Sem skýringu á greiðslu er skráð: 1470-147368. 
 
Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs 
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar 

Hljómsveitin Kaleo með tónleika í Háskólatorgi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. september 2013 - 12:00 to 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Sviðið
Hljómsveitin Kaleo
Í tilefni af Nýnemadögum verður hljómsveitin Kaleo með tónleika í Háskólatorgi.
 
Kaleo spilar fjölbreytta tónlist með rokk með blúsívafi og hljómsveitarmeðlimir segjast vera undir sterkum áhrifum tónlistar frá 7. og 8. áratugnum.  
 
Allir velkomnir.
 

Snorri Helgason með tónleika í Háskólatorgi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. september 2013 - 12:00 to 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Sviðið
Í tilefni af Nýnema- og stúdentadögum verður Snorri Helgason með tónleika í Háskólatorgi.
 
Hugheil og persónuleg tónlist Snorra hefur verið kölluð nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. 
 
Allir velkomnir. 

Opinn fundur: Kosningar í Noregi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. september 2013 - 12:00 to 13:15
Staðsetning viðburðar: 

Þingkosningar fara fram í Noregi mánudaginn 9. september. Í tilefni þess verður efnt til hádegisfundar um kosningarnar og norsk stjórnmál.

Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, flytur stutt erindi um kosningarnar og stjórnmál í Noregi.

Í kjölfar þess verður rætt um stöðuna í norskum stjórnmálum í pallborði. Þátttakendur verða;  Eiður Guðnason, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Svavar Gestsson og Þóra Tómasdóttir. Öll þekkja þau vel til norskra stjórnmála.

Norræna félagið á Íslandi, sendiráð Noregs á Íslandi, upplýsingaskrifstofan Norðurlönd í fókus og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands standa að fundinum.

Fundarstjóri: Bogi Ágústsson.

Frekari upplýsingar á vefsíðum Norræna hússins, nordice.is, Norræna félagsins, norden.is og Alþjóðamálastofnunar, ams.hi.is.

Einar Lövdahl með tónleika í Háskólatorgi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. september 2013 - 12:00 to 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Sviðið
Einar Lövdahl
Í tilefni af Nýnemadögum verður Einar Lövdahl með tónleika í Háskólatorgi.
 
Einar Lövdahl, sem er ritstjóri Stúdentablaðsins er ekki eingöngu lunkinn með pennann því hann er einnig tónlistarmaður og gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Tímar án ráða.
 
Tónlist Einars hefur verið skilgreind af ýmsum sem létt indípopp með alþýðutónlistarkeim, vegna skýrra íslenskra texta. 
 
Einar stígur á stokk í Háskólatorgi með einvalaliði hljóðfæraleikara úr tónklíku sem ber nafnið Hjörðin. Í Hjörðinni er að finna tónlistarmenn úr öðrum hljómsveitum á borð við Sykur, Porquesí og Tuttugu.
 
Allir velkomnir.

Correlating structure and function for nanoparticle catalysts

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. ágúst 2013 - 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 157

Associate Professor Graeme Henkelman from University of Texas í Austin Chemistry Department will be visiting VoN this Friday. He will present the above titled seminar. The Chemistry department at UT Austin is one of the top 30 chemistry departments in the world. Dr Henkelman´s representative work is showcased in prolific publications this year, as his presentation will focus on his current research activities.

•  L. Zhang, H.-Y. Kim, and G. Henkelman, CO Oxidation at the Au-Cu Interface of Bimetallic Nanoclusters Supported on CeO2(111), J. Phys. Chem. Lett. 4, 2943-2947 (2013).

•  D. F. Yancey, S. T. Chill, L. Zhang, A. I. Frenkel, G. Henkelman, and R. M. Crooks, A theoretical and experimental examination of systematic ligand-induced disorder in Au dendrimer-encapsulated nanoparticles,Chem. Sci. 4, 2912-2921 (2013)

•  R. Iyyamperumal, L. Zhang, G. Henkelman, and R. M. Crooks, Efficient electrocatalytic oxidation of formic acid using Au@Pt dendrimer-encapsulated nanoparticles, J. Am. Chem. Soc. 135, 5521-5524 (2013).

•  D. Pozun, S. E. Rodenbusch, E. Keller, K. Tran, W. Tang, K. J. Stevenson, and G. Henkelman, A systematic investigation of p-nitrophenol reduction by bimetallic dendrimer encapsulated nanoparticles, J. Phys. Chem. C 117, 7598-7604 (2013).

•  M. Pan, A. J. Brush, Z. D. Pozun, H.-C. Ham, W.-Y. Yu, G. Henkelman, G. S. Hwang, and C. B. Mullins,Model studies of heterogeneous catalytic hydrogenation reactions with gold, Chem. Soc. Rev. 42, 5002-5013 (2013).

•  H.-Y. Kim and G. Henkelman, CO oxidation at the interface of Au nanoclusters and the stepped-CeO2(111) surface by the Mars-van Krevelen mechanism, J. Phys. Chem. Lett. 4, 216-221 (2013).


Aldarafmæli ferðalags: Tveir femínistar frá Vesturlöndum í Afríku og Asíu á árunum 1911-12

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. ágúst 2013 - 12:00 to 13:00
Nánari staðsetning: 
Þjóðminjasafn Íslands

Föstudaginn 30. ágúst flytur Harriet Feinberg, fyrrum enskukennari við Massachusetts háskóla í Boston og doktor í kennslufræðum frá Harvard háskóla, fyrirlestur sem ber heitið „Aldarafmæli ferðalags: Tveir femínistar frá Vesturlöndum í Afríku og Asíu á árunum 1911-12“ [“Two Western Feminists in Africa and Asia, 1911-12: Centennial of a Journey”]. Fyrirlesturinn fer fram á ensku í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, kl. 12:00-13:00.

Fyrir um hundrað árum hélt hollenska súffragettan og friðarsinninn Aletta Jacobs, ásamt bandarísku súffragettunni Carrie Chapman Catt, til Afríku og Asíu til þess að kanna aðstæður kvenna og hvetja konur þar til að bindast samtökum. Súffragetturnar tvær töldu að baráttan fyrir frelsi kvenna væri ekki einskorðuð við vestrænar konur heldur ætti hún að ná til kvenna um allan heim. Ferðalýsingar Alettu Jacobs, sem hún skrifaði fyrir hollenskt dagblað á þessum tíma, veita ekki aðeins innsýn í hugdjarft ferðalag heldur hafa þær einnig áhugaverða skírskotun til kvennabaráttu samtímans.   

Harriet Feinberg ritstýrði ensku þýðingunni á Herinneringen, sjálfsævisögu hollenska læknisins og súffragettunni Allettu Jacobs (1954-1929). Hún var birt undir enska heitinu Memories: My life as an International Leader in Health, Suffrage, and Peace (The Feminist Press, 1996).

Fyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands.

Öll velkomin! 

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum

www.rikk.hi.is

Heimur handritanna

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. október 2013 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
The World of Manuscripts

Alþjóðlega ráðstefnan ,,Heimur handritanna" verður haldin í Reykjavík 10.- 12. október 2013. Ráðstefnan er öllum opin og ekki þarf að greiða fyrir þátttöku. Dagskrá og nánari upplýsingar eru á vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum:

www.arnastofnun.is/page/arni_magnusson_althjodleg_en

Skráningu lýkur 15. september.

Menntakvika

Með fróðleik í fararnesti - Fæðuhringurinn í miðborg Reykjavíkur. Saga matar frá landnámi til okkar daga

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
21. september 2013 - 11:00 to 13:00
Nánari staðsetning: 
Ganga hefst á horni Aðalstrætis og Túngötu
Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða gönguferð þar sem matur, saga og menning verða meginefnið. Gangan hefst á horni Aðalstrætis og Túngötu kl. 11 og henni lýkur við gömlu höfnina. Gengið verður um gamla grænmetisgarða, stakkstæði, veitingastaði og verslanir liðins tíma.
 
Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um fræðandi gönguferðir sem hófust á aldarafmæli skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands blandast saman í áhugaverðum gönguferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
 
 

Fyrirlestur Leo Catana: Heimspeki- eða hugmyndasaga?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. september 2013 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofu 301

Heimspekisaga eða hugmyndasaga? Um aðferðafræðilegan ágreining tveggja greina.

Fyrirlestur með Leo Catana, lektor við Heimspekideild Háskólans í Kaupmannahöfn. 13. September 2013, kl. 14:00 í Árnagarði, stofu 301

Þegar Arthur Lovejoy stofnaði hugmyndasögu á 4. áratug síðustu aldar gerði hann skýran greinarmun á þessari nýju grein og annarri grein með lengri sögu, þ.e. heimspekisögu. Aðferðafræði hugmyndasögu tók verulegum breytingum á 7. áratugnum undir áhrifum frá Quentin Skinner og fleiri en þrátt fyrir það varðveittist aðferðafræðilegur ágreiningur við heimspekisögu. Þetta er ljóst af inngangi bókarinnar Philosophy in History, sem kom út árið 1984 og var ritaður af Quentin Skinner, Richard Rorty og J. B. S. Schneewind: Hugmyndasaga fjallar um sögulegt samhengi texta en heimspekisaga um heimspekileg vandamál sem koma fram í þessum textum. Í fyrirlestrinum mun Dr. Catana kynna þennan ágreining og gagnrýna aðferðafræðilegan grunn hans.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Heimspekistofnunar og fer fram á ensku.

Fyrr um daginn (11:40 til 13:00) er Leo Catana með semínar um sama efni fyrir framhaldsnema og kennara á Heimspekisviði og aðra sem hafa áhuga í stofu 303 í Árnagarði. Áhugasamir snúi sér til Eiríks Smára Sigurðarsonar, rannsóknastjóra á Hugvísindasviði: esmari@hi.is

 

History of Philosophy or Intellectual History? On the Methodological Conflict between the two Disciplines

Paper by Leo Catana, Division of Philosophy, University of Copenhagen

September 13, 2013, 14:00, in room 301 in Árnagarður

When Arthur Lovejoy founded the history of ideas in the 1930s, he articulated a marked contrast between this new discipline and another well-established discipline, namely the history of philosophy. The methodology of the history of ideas underwent a profound transformation in the 1960s and was eventually termed ‘intellectual history’ by Quentin Skinner and others. Nevertheless, the methodological opposition to the history of philosophy remained. This opposition is clear in the ‘Introduction’ to the volume Philosophy in History (1984), written by Quentin Skinner, Richard Rorty and J. B. S. Schneewind: Intellectual history focuses on the historical context of past texts, whereas history of philosophy focuses on the philosophical problems articulated in these texts. In this paper Leo Catana presents this conflict and he questions some of its basic methodological assumptions.

Dr. Catana is hosted by the Institute of Philosophy.

At 11:40 to 13:00 Dr. Catana hosts a seminar on the same subject in room 303 in Árnagarður. For registration turn to Eiríkur Smári Sigurðarson, Director of Research, School of Humanities (esmari@hi.is).

Kynningarfyrirlestur - nýskipaður prófessor Unnur Anna Valdimarsdóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. september 2013 - 15:00 to 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 201

Á Heilbrigðisvísindasviði hefur verið tekin upp sú nýbreytni að halda upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri þeirra. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann við flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. Sjá nánar á www.hi.is/hvs/kynningarfyrirlestrar

Þann 12. september n.k. flytur Unnur Anna Valdimarsdóttir, nýskipaður prófessor í faraldsfræði við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, erindi í tilefni af ráðningu sinni.

Af erlendri rót - Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. september 2013 - 20:00
Nánari staðsetning: 
Hljóðberg í Hannesarholti, Grundarstíg 10

Ásta Svavarsdóttir: Af erlendri rót

Í fyrirlestrinum verður fjallað um máltengsl, máláhrif og afleiðingar þeirra í tungumálinu. Sagt verður frá rannsóknum á aðkomuorðum (tökuorðum, slettum o.s.frv.) í íslensku á seinni hluta 19. aldar og 20. öld og fjallað um erlend áhrif í orðaforðanum í ljósi niðurstaðna þeirra. Áhersla verður lögð á fyrirferð aðkomuorða í málnotkun og einkenni slíkra orða: Nota Íslendingar mikið eða lítið af aðkomuorðum í máli sínu? Hvar og hvenær nota þeir þau helst? Hvernig fara þeir með þau? Hvert er viðhorf þeirra til erlendra máláhrifa? Hvers vegna bregða þeir (ekki) slíkum orðum fyrir sig?  

Ásta Svavarsdóttir er cand.-mag. í íslenskri málfræði og rannsóknardósent á Árnastofnun.


Rannsóknir á norðurljósum á Íslandi í 30 ár

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. september 2013 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðarsalur
Northern lights

Prófessor Natsuo Sato
Pólrannsóknastofnun Japans

Miðvikudaginn 4. september 2013 heldur Natsuo Sato, prófessor við Pólrannsóknastofnun Japans, fyrirlestur um rannsóknir japanskra og íslenskra vísindamanna á norðurljósunum síðastliðin þrjátíu ár. Fyrirlesturinn fer fram í hátíðasal Háskóla Íslands og hefst klukkan 16:00. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

Undanfarin 30 ár hafa athuganir á norðurljósum verið framkvæmdar á þremur stöðum á Íslandi í samstarfi japönsku Pólrannsóknastofnunarinnar og Raunvísindastofnunar Háskólans. Rannsóknarstöð Japana í Syowa á Suðurskautslandinu og stöðvarnar á Íslandi þykja kjörnar til rannsókna á gagnstæðum segulljósum.

Gagnstöðupunktar eru staðir sem tilteknar jarðsegulsviðslínur tengja á norður- og suðurhveli. Segulsviðslínur á pólsvæðum jarðar tengjast annað hvort við gagnstætt hvel (lokaðar segulsviðslínur) eða geimsegulsviðið (opnar segulsviðslínur). Hlaðnar agnir frá sólinni ferðast eftir þessum línum og því er stundum talað um að norður- og suðurljósin séu spegilmyndir hvors annars. Þrjátíu ára rannsóknir sýna hins vegar að spegluð norðurljós eru fátíð.

Mælingar á gagnstæðum segulljósum veita einstakt tækifæri til rannsókna á því hvar og hvernig hinar ósýnilegu segulsviðslínur tengja jarðarhvelin; hvaða áhrif sólvindurinn hefur á segulhvolf jarðar og á eðli hröðunarferla norðurljósa.

Mjög fáir heppilegir athugunarstaðir eru á suðurhveli sem takmarkar gagnstöðuathuganir á jörðu niðri. Gera þarf sjónmælingar samtímis frá tveimur gagnstöðupunktum á jörðinni, en til þess þurfa báðar athugunarstöðvarnar að vera í myrkri og veður þarf að vera hagstætt. Þrátt fyrir þessar takmarkanir hafa margir áhugaverðir segulljósaatburðir greinst.

Í erindinu verður fjallað almennt um norðurljós, gagnstæð segulljós og þrjátíu ára sögu norðurljósarannsókna Japana á Íslandi. Að auki verður rætt um fyrirbæri eins og norðurljósaslit, norðurljósaperlur og blikótt norðurljós. Fjöldi mynda og myndskeiða verður sýndur.

Nýsköpun á Heilbrigðisvísindasviði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. október 2013 - 13:00 to 16:00
Nánari staðsetning: 
Radisson BLU Hótel Saga

Öllu starfsfólki og nemendum Heilbrigðisvísindasviðs er boðið á sérstaka nýsköpunarráðstefnu sem haldin verður í fyrsta sinn haustið 2013. Þar gefst kostur á að kynna verkefni og hugmyndir um nýsköpun í heilbrigðisvísindum.

Dagskrá væntanleg 27. september.

Sjá nánari upplýsingar um ráðstefnuna Nýsköpun á Heilbrigðisvísindasviði á heimasíðu sviðsins.

„Three Dark Brown Maidens and the Brommtopp: (De)Constructing Masculinities in Southern Manitoba Mennonite Mumming“

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. september 2013 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 103

Fimmtudaginn 12. september flytur Pauline Greenhill, prófessor við University of Winnipeg, Manitoba, fyrirlestur sem hún nefnir „Three Dark Brown Maidens and the Brommtopp: (De)Constructing Masculinities in Southern Manitoba Mennonite Mumming“. Fyrirlesturinn, sem er haldinn á vegum Rannsóknamiðstöðvar í þjóðfræði, fer fram á ensku í stofu Ht. 103, Háskólatorgi.

Í fyrirlestrinum fjallar Greenhill um hátíða- og dulbúningasiði ólíkra hópa í þorpum Manitoba á nýárskvöld og fram á „Twelfth Night“ (sbr. þrettándann) og húsvitjanir þeim tengdum. Ýmsar hefðir hafa skapast í kringum uppákomurnar, s.s. varðandi dans, söng og veitingar. Greenhill mun einkum fjalla um venjur sem tengjast hópum unglingsstráka, sem hún skoðar í félagssögu- og kynjafræðilegu ljósi.
Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar

Eining og aðgreining. Enska biskupakirkjan og Evangelísk lútherska kirkjan í samkirkjulegu hreyfingunni.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. september 2013 - 11:40
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 229

Mánudaginn 9. september flytur dr. Jaakko Rusama opinberan fyrirlestur í boði Guðfræðistofnunar í stofu 229 í Aðalbyggingu HÍ. Fyrirlesturinn hefst kl. 11:40.

Yfirskrift fyrirlestursins er: Eining og aðgreining. Enska biskupakirkjan og Evangelísk lútherska kirkjan í samkirkjulegu hreyfingunni. 

Evangelísk lúthersk kirkja og Enska biskupakirkjan tilheyra hinni alþjóðlegu samkirkjulegu hreyfingu. Báðar kirkjudeildir leggja áherslu á að túlka eininguna sem kristin kirkja byggir á. Þess vegna hafa þær leitast við að finna leiðir til að tjá hinn sameiginlega boðskap í ólíku samhengi. Samt sem áður eru þessar kirkjudeildir ekki að fullu sammála í kenningarlegum efnum og innan þeirra sjálfra ríkir að sama skapi ekki fullkomin eining. Samkirkjulega hreyfingin gengur nú í gegnum miklar breytingar. Í fyrirlestrinum verður leitast við að svara því hvernig kirkjudeildirnar bregðast við þeim áskorunum sem þær standa frammi fyrir á þessum breytingatímum. 

Dr. Jaakoo Rusama er aðjúnkt í samkirkjulegri guðfræði við háskólann í Helsinki í Finnlandi og prestur í hinni Evangelísk Lúthersku kirkju í Finnlandi. Hann lauk doktorsgráðu frá háskólanum í Cambridge í Bretlandi 1985 og mastersgráðu frá háskólanum í Helsinki 1974. Eftir hann liggur mikið af rituðu efni, aðallega um samkirkjuleg málefni en einnig siðfræði og kennslu.

Fyrirlestur dr. Rusama er hluti af heimsókn fulltrúa the International Anglican-Lutheran Society til Íslands dagana 6. til 10. september. Nánari upplýsingar um félagið má finna hér: www.anglican-lutheran-society.org.

 

Chris Mooney: Sálfræðin sem býr að baki stríðinu gegn umhverfisvísindum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. september 2013 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 105

Chris Mooney flytur fyrirlestur í Háskólatorgi 105, laugardaginn 7. september kl. 12:00-13:30. Fyrirlesturinn nefnir hann ,,Sálfræðin sem býr að baki stríðinu gegn umhverfisvísindum."

Mooney er þekktur fyrir verk sín um vísindastríðin svokölluðu, en eftir hann eru bækurnar The Republican War on Science (2005); Storm World: Hurricanes, Politics and the Battle Over Global Warming (2007); Unscientific America, ásamt Sheril Kirshenbaum (2009); og The Republican Brain: The Science of Why They Deny Science and Reality (2012).

Meðal dagblaða og tímarita sem Mooney skrifar reglulega í eru The Washington Post, The Los Angeles Times, Mother Jones, Salon og The Atlantic.

Guðni Elísson, forseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands, kynnir Mooney og stýrir umræðum.

Fyrirlesturinn, sem er öllum opinn, er hluti af námskeiðunum Menningu og andóf og Loftslagsbreytingar, orðræða og aðgerðastefna sem kennd eru í menningarfræðum við Háskóla Íslands.

Viewing all 3012 articles
Browse latest View live