Hvenær hefst þessi viðburður:
17. október 2014 - 21:00
Staðsetning viðburðar:

Alls konar og ýmsu verður snúið á hvolf á lokahófi Jafnréttisdaga! DJ Yamaho, DJ Flugvél og Geimskip, og Hljómsveitt halda uppi vinalegri stemningu frá kl. 21. Það eru Jafnréttisnefnd SHÍ, Q - félag hinsegin stúdenta & starfshópur um Jafnréttisdaga sem bjóða ykkur velkomin í kvöld.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Jafnréttisdaga sem eru nú haldnir sjötta árið í röð í Háskóla Íslands. Að þessu sinni hefst dagskrá mánudaginn 6. október og lýkur föstudaginn 17. október.