Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Málstofa Lífvísindaseturs - Lækningavörur úr sjávarfangi hjá Zymetech

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. október 2014 - 12:00 til 12:40
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa 343
Dr. Alexander Schepsky

Málstofa Lífvísindaseturs verður haldin fimmtudaginn 9. október kl. 12:00-12:40 í stofu 343 í Læknagarði.

Dr. Alexander Schepsky hjá rannsókna- og þróunarsviði Zymetech mun halda fyrirlesturinn "Marine derived medical devices and more

Zymetech er íslenskt líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun ensíma úr sjávarlífverum, og hvernig nota má þau í heilbrigðis- og útlitsgeiranum á heimsvísu. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 og er staðsett í Reykjavík. Zymetech er leiðandi á heimsvísu í notkun ensíma úr sjávarlífverum í meðferðarskyni. Penzyme tæknin er meginhugverk fyrirtækisins og felur í sér tækni til að nálgast ensím úr sjávarlífverum. Rannsóknir þeirra hafa sýnt fram á virkni Penzyme í meðhöndlun húðsjúkdóma, eflingu í sáraviðgerð og gegn veiru- og bakteríusýkingum. Í þessum fyrirlestri mun Alexander fara yfir hvað fyrirtækið hefur verið að vinna að undanfarið og hvernig rannsóknir hjá Háskóla Íslands geta skapað ný tækifæri fyrir öflug sprotafyrirtæki.

Erindið verður flutt á ensku og er öllum opið.

Nánari upplýsingar á viðburðadagatali Lífvísindaseturs HÍ


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012