Hvenær hefst þessi viðburður:
10. október 2014 - 13:00 til 14:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Skáli

Kaffihúsið GÆS var stofnað af brautskráðum nemendum úr diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við HÍ. Kaffihúsinu er ætlað að stuðla að opnara samfélagi og aukinni fjölbreytni í atvinnumálum fatlaðs fólks. Gestum og gangandi verður boðið upp á kaffi og jafnréttisspjall. Kaffihúsið GÆS afgreiðir kaffi á mörgum tungumálum.
Öll möguleg tungumál
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Jafnréttisdaga sem eru nú haldnir sjötta árið í röð í Háskóla Íslands. Að þessu sinni hefst dagskrá mánudaginn 6. október og lýkur föstudaginn 17. október.