
Viðar Engilbertsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í líffræði. Verkefnið ber heitið Energy Dynamics and Recruitment of Icelandic Capelin.
Ágrip
Í þessari rannsókn var leitast við að útskýra breytileika í nýliðun loðnu yfir tímabilið 1979 til 2012. Hægt er að útskýra 78% af breytileika í nýliðun loðnu með líkani sem notar þrjár skýribreytur: árlega fituvísitölu, hitastig og stærð hrygningarstofns. Árleg fituvísitala, sem lýsir hversu feit loðnan er miðað við meðalár, gegnir lykilhlutverki og útskýrir ein og sér 48% af breytileika í nýliðun. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar má nota mælingar á fituvísitölu, sjávarhita og stærð hrygningarstofns til að spá fyrir um árgangastærð ókynþroska loðnu tveimur árum áður en hún kemur í veiði.
Verkefnið var unnið í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Háskóla Íslands.
Leiðbeinendur: Guðrún Marteinsdóttir, prófessor, dr. Guðmundur J. Óskarsson og Árni Magnússon
Prófdómari: Bjarni Kristófer Kristjánsson