Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Evrópski tungumáladagurinn - Málþingið Tungumálakunnátta er allra hagur

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. september 2014 - 15:00 til 17:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Frá Evrópska tungumáladeginum 2013: Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra UNESCO fyrir tungumál, og Katrín Elna Jónsdóttir þýskukennari.

Í tilefni Evrópska tungumáladagsins sem haldinn er hátíðlegur þann 26. september ár hvert, stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum fyrir hátíðardagskrá í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi.

Málþingið ber yfirskriftina „Tungumálakunnátta er allra hagur“ og fer fram í stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands föstudaginn 26. september kl. 15-17:30. Áhersla verður lögð á gildi fornmálanna og almennrar tungumálakunnáttu í víðasta samhengi.

Dagskrá:

Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, setur málþingið.
Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra UNESCO fyrir tungumál, flytur ávarp.
Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, latínukennari við MR og HÍ: „Amo - amas – amat…“
Hjalti Snær Ægisson, stundakennari í almennri bókmenntafræði við HÍ: „Kvikuþró kveðskaparins: Um latínu og íslenska bókmenntasögu.“
Guðbjörg Þórisdóttir, meistaranemi í heimspeki við HÍ: „Ólgandi líf í eldfornum tungum.“
Viðar Pálsson, lektor í réttarsögu við HÍ: „Latínumenn og íslenskar fornsögur.“
Kaffihlé.
Adda Guðrún Gylfadóttir, nemi af fornmálabraut í MR: „Hvers vegna fornmálabraut?“
Reynir Tómas Geirsson, prófessor og yfirlæknir: „Frá fornmálum til nútímans í læknisfræði.“
Atli Freyr Steinþórsson, dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu: „Hier spricht Reykjavík: Hugleiðingar útvarpsmanns um tungumál og ljósvaka.“
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona. „Fjöltyngi er fjölkynngi.“

Í lok dagskrár verður boðið upp á léttar veitingar. Allt áhugafólk um tungumál og menningu er hvatt til að mæta.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012