Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Valgerður Tómasdóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. september 2014 - 13:00
Nánari staðsetning: 
Íslensk erfðagreining - Auditorium Fróði
Háskóli Íslands

Valgerður Tómasdóttir ver doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum:

„Áhrif fiskolíu í fæði á byrjunar- og lausnarfasa vakamiðlaðrar bólgu“ - „The effects of dietary fish oil on the induction and resolution of antigen-induced inflammation.“

Andmælendur eru dr. Jenifer I. Fenton, dósent við Háskólann í Michigan og dr. Ingileif Jónsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.

Leiðbeinendur í verkefninu voru dr. Ingibjörg Harðardóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og dr. Jóna Freysdóttir, einnig prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur á Ónæmisfræðideild Landspítala Háskólasjúkrahúsi.

Auk þeirra sátu í doktorsnefnd dr. Helga M. Ögmundsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og Arnór Víkingsson, lyf- og gigtarlæknir við Landspítala og Þraut ehf.

Rannsóknin var unnin á Ónæmisfræðideild og Rannsóknastofu í gigtlækningum, Landspítala og Lífefna- og sameindalíffræðistofu Læknadeildar Háskóla Íslands. Verkefnið var styrkt af Rannsóknasjóði RANNÍS, Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og Vísindasjóði Landspítalans.

Dr. Magnús Karl Magnússon, prófessor og forseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni.

 

Ágrip

Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur dempa byrjunarfasa bólgu en áhrif þeirra á hjöðnun bólgu hafa ekki verið skoðuð. Auk þess er lítið vitað um áhrif ómega-3 fjölómettaðra fitusýra á sérhæfða ónæmiskerfið í bólguferlinu.

Doktorsritgerðin fjallar um áhrif fiskolíu í fæði músa á byrjunar- og hjöðnunarfasa bólgu og á sérhæfða ónæmiskerfið í vakamiðlaðri kviðarholsbólgu.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að í byrjunarfasa bólgunnar fækkaði fiskolía í fæði fjölda neutrófíla í kviðarholi, stytti hjöðnunarbilið og lækkaði styrk bólguhvetjandi boðefnanna G-CSF og IL-6 og flakkboðanna CXCL1 og CCL11 í kviðarholsvökva. Í hjöðnunarfasanum jók fiskolía í fæði styrk bólguhamlandi boðefnisins TGF-β og boðefnaviðtakans sIL-6R í kviðarholsvökva og tjáningu á D6 og CCR7 á kviðarhols makrófögum. Í síðbúnum hjöðnunarfasa jók fiskolía í fæði fjölda eosínófíla og CD138 jákvæðra makrófaga í kviðarholi. Fiskolía í fæði hafði einnig áhrif sérhæfða ónæmissvarið með því að auka fjölda T og B1 frumna í kviðarholi, auka fjölda IgM jákvæðra frumna í milta og hækka styrk mBSA sértækra IgM mótefna í sermi.

Niðurstöðurnar benda til þess að fiskolía í fæði hafi dempandi áhrif á bólgusvar í vakamiðlaðri bólgu en auki virkni hjöðnunarfasans. Að auki benda niðurstöðurnar til þess að fiskolía auki B1 frumusvar og geti því mögulega aukið vörn gegn endurteknum sýkingum.

 

Valgerður Tómasdóttir er fædd árið1979, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1999, BS prófi í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og MS prófi í líftækni frá Háskólanum í Lundi árið 2005. Hún starfaði hjá lyfjaþróunardeild Íslenskrar erfðagreiningar frá 2006-2008. Valgerður hóf doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2008 og hefur starfað sem verkefnastjóri og sérfræðingur í Lyfjaupplýsingadeild á Skráningarsviði Actavis frá árinu 2012.

 

Valgerður er dóttir hjónanna Tómasar Á. Einarssonar og Elísabetar Benediktsdóttur. Eiginmaður Valgerðar er Hörður Bjarnason og eiga þau þrjú börn, Tómas Helga, Ísabellu Helgu og Maríu Björt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012