
Nú er komið að þriðja föstudagsseminari Sagnfræði- og heimspekideildar um söguleg efni sem haldið verður föstudaginn 19. september í stofu 102 Gimli (G102), kl. 12-13. Ólafur Rastrick lektor í þjóðfræði við Háskóla Íslands segir frá áformum um rannsóknarverkefni sem ber yfirskriftina:
„Acting on the Body: Governing Icelandic Physicality.“
Ólafur lýsir verkinu svona: Viðfangsefnið er söguleg og þjóðfræðileg greining á líkamsmenningu á Íslandi með sérstakri áherslu á millistríðsárin. Sjónum er beint að ólíkum sviðum orðræðunnar um mannslíkamann á þessum árum og praktískum útfærslum hennar. Markmiðið er að greina þátt þess líkamlega í að skapa og skilyrða sjálfsmyndarmótun Íslendinga og bregða ljósi á þær leiðir sem farnar voru til að hafa áhrif á eða stýra líkamshegðun og -háttum þjóðarinnar. Kenningalega sækir rannsóknin til aukins áhuga fræðimanna sem stunda sögulegar rannsóknir á þætti þess líkamlega í fortíðinni, áhuga sem vísað hefur verið til sem „the somatic turn“ í menningarsögurannsóknum.