
Fimmtudaginn 12. september flytur Pauline Greenhill, prófessor við University of Winnipeg, Manitoba, fyrirlestur sem hún nefnir „Three Dark Brown Maidens and the Brommtopp: (De)Constructing Masculinities in Southern Manitoba Mennonite Mumming“. Fyrirlesturinn, sem er haldinn á vegum Rannsóknamiðstöðvar í þjóðfræði, fer fram á ensku í stofu Ht. 103, Háskólatorgi.
Í fyrirlestrinum fjallar Greenhill um hátíða- og dulbúningasiði ólíkra hópa í þorpum Manitoba á nýárskvöld og fram á „Twelfth Night“ (sbr. þrettándann) og húsvitjanir þeim tengdum. Ýmsar hefðir hafa skapast í kringum uppákomurnar, s.s. varðandi dans, söng og veitingar. Greenhill mun einkum fjalla um venjur sem tengjast hópum unglingsstráka, sem hún skoðar í félagssögu- og kynjafræðilegu ljósi.
Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar