Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Stefanía P. Bjarnason

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. júní 2014 - 10:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 105
Háskóli Íslands

Föstudaginn 27. júní nk. mun Stefanía P. Bjarnason verja doktorsritgerð sína: Myndun ónæmisminnis í nýburamúsum -  Bólusetning með próteintengdri pneumókokkafjölsykru og ónæmisglæðum eftir mismunandi bólusetningarleiðum

Bólusetning nýbura væri ákjósanlegur kostur því víða um heim er er fæðingin áreiðanlegasti tíminn fyrir aðgang barna að heilbrigðisþjónustu. Til þess að yfirvinna fjölmargar takmarkanir í ónæmissvörun nýbura og ungbarna er þörf fyrir viðbót öruggra og virkra ónæmisglæða í bóluefni .

Doktorsritgerðin fjallar um myndun og viðhald sértækra mótefnaseytandi frumna og minnisfrumna gegn pneumókokkafjölsykru í nýburamúsum eftir bólusetningu með hreinni fjölsykru eða próteintengdu fjölsykrubóluefni (Pnc-TT), og hvort og hvernig ónæmisglæðarnir LT-K63 og CpG-ODN og ólíkar bólusetningarleiðir geti yfirunnið takmarkanir í ónæmissvörum nýbura.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að bæði LT-K63 og CpG-ODN juku mótefnasvar og fjölda mótefnaseytandi frumna eftir bólusetningu nýburamúsa með Pnc-TT og vernd gegn pneumókokkasýkingu. Einungis LT-K63 jók kímstöðvarhvarf og þroskun kímstöðvarfrumna sem eru aðaltakmörkunarþættir í myndun ónæmisminnis í nýburamúsum. Endurbólusetning nýburamúsa með hreinni fjölsykru undir húð leiddi til skerðingar á mótefnasvari, sem frumbólusetning með Pnc-TT hafði vakið, en slík skerðing varð ekki í fullorðnum músum. Skerðingin vegna fjölsykrubólusetningin olli hömlun á kímstöðvarhvarfi, eyðingu minnisfrumna og langlífra mótefnaseytandi frumna sem höfðu myndast við frumbólusetningu með Pnc-TT, og leiddi þannig til  varanlegrar skerðingar ónæmissvars.

Rannsóknin sýndi að nýburabólusetningar er raunhæfur kostur ef notaðir eru ónæmisglæðar með sambærilega eiginleika og virkni og LT-K63.  Í ljósi þess að endurbólusetning með hreinni pneumókokkafjölsykru hamlar myndun minnisfrumna og stuðlar að eyðingu þeirra og mótefnaseytandi frumna leggjum við til að notkun fjölsykrubóluefna verði endurskoðuð.

Leiðbeinandi var dr. Ingileif Jónsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, forstöðumaður á Ónæmisfræðideild Landspítala og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu.  Auk hennar voru í doktorsnefnd dr. Jóna Freysdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur á Ónæmisfræðideild, Landspítala, dr. Ásgeir Haraldsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, yfirlæknir í barnalækningum og forstöðumaður fræðasviðs, dr. Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir á Ónæmisfræðideild, dr. Maren Henneken fyrrum sérfræðingur á Ónæmisfræðdeild, Landspitala.

Rannsóknin var unnin á Ónæmisfræðideild Landspítalans og Háskóla Íslands. Helstu samstarfsaðilar voru dr. Claire-Anne Siegrist, Professor of Vaccinology and Pediatrics, University of Geneva, Sviss, dr. Giuseppe Del Giudice, Global Head Translational Medicine, Novartis Vaccines and Diagnostics, Ítalíu og dr. Emanuelle Trannoy, former Head of Technology Portfolio and European public partnership, Sanofi Pasteur, Frakklandi. Verkefnið var styrkt af Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands, Lífvísindaáætlun ESB (QLK2-CT-1999-00429 Neovac-EC ), Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar, Rannsóknanámssjóði, Rannsóknasjóði, Rannsóknasjóði Háskólans og Vísindasjóði Landspítalans.

Um doktorsefnið

Stefanía P. Bjarnarson er fædd árið 1974, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1995 og BS prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Stefanía hóf MS nám við Læknadeild Háskóla Íslands 2001 sem var uppfært í doktorsnám árið 2003.

Stefanía er dóttir hjónanna Péturs M. Bjarnarsonar og Guðrúnar Helgadóttur. Unnusti Stefaníu er Victor M. Castaneda Pena og saman eiga þau 4 börn, Blöncu Láru, Tristan Alejandro, Særúnu Luciu og Birtu Patriciu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012