
Á Heilbrigðisvísindasviði hefur verið tekin upp sú nýbreytni að halda upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri þeirra. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann við flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. Sjá nánar á www.hi.is/hvs/kynningarfyrirlestrar
Þann 12. september n.k. flytur Unnur Anna Valdimarsdóttir, nýskipaður prófessor í faraldsfræði við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, erindi í tilefni af ráðningu sinni.