Hvenær hefst þessi viðburður:
30. maí 2014 - 15:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 131

Rangyn Lim flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í líffræði. Verkefnið ber heitið Humpback whale (Megaptera novaeangliae) song description from a subarctic feeding ground.
Rannsóknirnar felast í skráningu og athugunum á söng hnúfubaks í Skjálfandaflóa. Hnúfubakurinn er líklega í fæðuleit í Skjálfandaflóa. Lítið er vitað um söng hnúfubaks á fæðuslóð, en mestar upplýsingar eru til um söng þeirra á suðlægari breiddargráðum, þar sem þeir makast.
Leiðbeinendur eru þau Marianne H. Rasmussen, Edda Elísabet Magnúsdóttir og Jörundur Svavarsson.
Prófdómari er Gísli Víkingsson,hvalafræðingur.