Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynningarfyrirlestur - nýskipaður prófessor Ásta St. Thoroddsen

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. júní 2014 - 15:00 til 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 201
Háskóli Íslands
Á Heilbrigðisvísindasviði hefur verið tekin upp sú nýbreytni að halda upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri þeirra. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann við flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.
 
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. Sjá nánar á www.hi.is/hvs/kynningarfyrirlestrar
 
Þann 3. júní n.k. flytur Ásta St. Thoroddsen, nýskipaður prófessor í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild, erindi í tilefni að framgangi sínum.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012