Hvenær hefst þessi viðburður:
17. maí 2014 - 12:00 til 16:00
Nánari staðsetning:
Háskólalestin heimsækir Vestmannaeyjar

Vestmannaeyjar eru annar áfangastaður Háskólalestarinnar vorið 2014. Í Háskólalestinni gefst gestum kostur á að sjá vísindin í lifandi og skemmtilegu ljósi.
Föstudaginn 16. maí sækja nemendur úr 6. og 9. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja valin námskeið í Háskóla unga fólksins.
Námskeiðin sem um ræðir eru meðal annars:
Japanska
Efnafræði
Eðisfræði
Stjörnufræði
Heimspeki
Stærðfræði
Legó forritun
Vísindaheimspeki
Daginn eftir, laugardaginn 17. maí, er boðið til Vísindaveislu í samkomuhúsinu Höllinni frá kl 12-16. Þar verður margt spennandi að sjá og heyra.
• Sýnitilraunir og tæki
• Japönsk menning og saga hugmynda
• Undur jarðar og himinhvolfs
• Leikir, þrautir og uppákomur
• Nýsköpunarmiðstöð Íslands mætir með tæki og tól úr Fab Lab-inu
• Sprengjugengið landsfræga sýnir kl. 12:30 og 14:30
• Stjörnutjaldið sýnir á 30 mínútna fresti frá kl 12:00
• Margt fleira áhugavert og skemmtilegt.
Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.