Hvenær hefst þessi viðburður:
13. maí 2014 - 14:30 til 17:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
H207

Rannsóknastofa í fjölmenningarfræðum heldur ársfund þriðjudaginn 13. maí kl. 14:30-17:00 í stofu H207 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð/Háteigsveg.
Á fundinum verða m.a. kynnt nokkur nýleg meistaraprófsverkefni á sviði fjölmenningarfræða og eitt verkefni af vettvangi skólastarfs. Allir eru velkomnir á fundinn en áhugafólk, fagfólk og rannsakendur á sviði fjölmenningarfræða er sérstaklega hvatt til að koma og taka þátt í umræðu um nýleg verkefni á þessu sviði.
Dagskrá:
14:30-14:35 Ávarp – Gunnar J. Gunnarsson
14:35-14:55 Kynning á Learning Spaces verkefninu: Hanna Ragnarsdóttir og fleiri.
14:55-15:35 Kynningar nýjum meistaraprófsverkefnum:
a) Helgi Svavarsson: „Þetta er svo gott fólk“ : birting fjölmenningar í íslenskum tónlistarskólum.
b) Hafdís Garðarsdóttir: „Það þarf að læra íslensku til að geta klárað námið“ : sýn innflytjenda frá Asíu og Afríku sem hafa lokið framhaldsskóla á Íslandi á skólagöngu sína.
15:35-15:50 Kaffihlé
15:50-16:30 Kynningar nýjum meistaraprófsverkefnum:
c) Móeiður Júníusdóttir: Hlutverk trúarbragðafræðslu í íslensku fjölmenningarsamfélagi : viðhorf foreldra grunnskólabarna.
d) Juliane Wilke: Íslenskunám leikskólabarna með annað móðurmál : rýnt í aðferðir og áherslur í leikskólanum.
16:30-16:50 Verkefni af vettvangi:
María Reyndal: Íslenskukennsla fyrir foreldra í leikskólanum Ösp.
16:50-17:00 Almennar umræður um hugmyndir að verkefnum, samstarfi og rannsóknum á sviði fjölmenningarfræða.
17:00 Fundi slitið.
Fundarstjóri: Fríða B. Jónsdóttir