
Tómas Örn Rosdahl flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í eðlisfræði. Verkefnið ber heitið Snaking states and flux-periodic oscillations in cylindrical core-shell nanowires.
Ágrip
Skammtafræðileg rafeindaástönd á endanlega löngu sívalningsyfirborði eru rannsökuð til að líkja eftir kjarna-skeljar hálfleiðarananóvír. Í þverstæðu segulsviði ákvarðast brautarhreyfing rafeindanna af ofanvarpi sviðsins í stefnu geislahnits. Þetta leiðir til myndunar hringhraðalsástanda þar sem geislahnitsofanvarp sviðsins er stærst og snákabrauta þar sem það er hverfandi. Þegar segulsviðinu er beint eftir ás sívalningsins greinast sveiflur sem eru lotubundnar í segulflæðinu og við reiknum leiðni sívalningsins með því að tengja hann veiklega við hálfóendanlegar leiðslur. Lotubundnar sveiflur eru greinanlegar þrátt fyrir að reiknað sé með óhreinindum og Rashba spuna-brautar víxlverkun og að hringsamhverfa tenginganna við leiðslurnar sé brotin. Í þverstæðu rafsviði fletjast sveiflurnar út en eru þó enn lotubundnar, en þegar tekið er tillit til Zeeman klofnunar eru sveiflurnar enn greinanlegar en ekki lengur lotubundnar og aðrar lágtíðnisveiflur sjást í bakgrunni. Reikningum okkar ber vel saman við niðurstöður tilrauna á GaAs/InAs kjarna-skeljar nanóvírum. Að lokum gerum við grein fyrir hvernig nota megi niðurstöður leiðnimælinga til að greina tilvist Rashba spuna-brautar víxlverkunar og til að meta segulspunahlutfallsstuðul rafeindanna í skelinni.
Prófdómari: Thomas Schäpers