
Miðvikudaginn 30.apríl ver Kristmann Gíslason doktorsritgerð sína í efnafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið ber heitið Stífar 5‘-6-læstar kirnisleifar sem merki fyrir litrófsgreiningar á kjarnsýrum / Rigid 5’,6-locked nucleosides as spectroscopic labels for nucleic acids.
Leiðbeinandi
Dr. Snorri Þór Sigurðsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Doktorsnefnd
Dr. Ágúst Kvaran, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Jón K.F. Geirsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Már Másson, prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands
Andmælendur
Dr. Hans-Achim Wagenknecht, prófessor, Karlsruher Institut für Technologie (KIT), Institut für Organische Chemie
Dr. Michal Hocek, prófessor, Academy of Sciences of the Czech Republic, Institute of Organic Chemistry and Biochemistry
Hafliði Pétur Gíslason prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar stjórnar athöfninni.
Ágrip
Fyrir ýmsar lífeðlisfræðilegar rannsóknir á byggingu og hreyfingum kjarnsýra er nauðsynlegt að merkja sameindirnar með virkum nemum (merkjum). Óvissu vegna hreyfinga nemans óháð sameindinni er hægt að lágmarka með stífum merkjum. Í þessu doktorsverkefni voru framkvæmdar efnasmíðar á 5‘,6-læstum kirnisleifum og notkunarmöguleikar þeirra sem nemar í lífeðlisfræðilegum rannsóknum á kjarnsýrum metnir. Kirnisleifarnar voru smíðaðar með þéttingu valdra tvíketóna með 5-amínó-2‘-deoxýcytídíni, sem leiðir til eter-tengingar milli 5‘-stöðunnar á sykrinum og 6-stöðunnar á kirnisbasanum. Tveir hópar nema voru rannsakaðir, annars vegar málm komplexar og hins vegar fljúrljómandi merki. 1,10-fenanþrólín var valið sem tengill fyrir málm-komplex merkin. Málm-bindandi kirnisleif var smíðuð með þéttingu 1,10-fenanþrólín- 5,6-díóns og 5-amínó-2‘-deoxýcytídíni. Hún var síðan phosphytileruð og innleidd í fákirni. Athugun á byggingu þessara fákirna leiddi í ljós að engin afmyndun á B-DNA helix byggingu ætti sér stað. Enn fremur voru smíðaðar afleiður af kirnisleifinni sem innihéldu bæði ruthenium og europium komplexa og eiginleikar þessara afleiða ákvarðaðar. Til að rannsaka notkun á 5‘,6-læstum kirnisleifum sem fljúrljómandi merki, voru smíðaðar níu kirnisleifar með auðfáanlegum tvíketónum. Þessi hópur merkja innihélt kirnisleif með tvo metýlhópa á grunneiningunni, fjórar kirnisleifar með tvo arómatíska hringi, tvær acenaphtylene kirnisleifar og tvær kirnisleifar þar sem grunneiningin var stækkuð með þremur og fjórum bensen hringjum. Í ljós kom að fjúrljómandi kirnisleifarnar höfðu fjölbreytta ljóseðlisfræðilega eiginleika. Bjartasta kirnisleifin var innleidd.
Um doktorsefnið
Kristmann Gíslason er fæddur í Reykjavík árið 1981. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2001. Kristmann lauk B.Sc. prófi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og M.Sc. prófi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Kristmann hefur starfað sem verkefnisstjóri við Nýsköpunarmiðstöð Íslands frá árinu 2012.