
Matthildur María Guðmundsdóttir heldur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í vélaverkfræði. Verkefnið ber heitið Improvements in conveyor drying of rockweed and kelp.
Þurrkiðnaðurinn á Íslandi er ört vaxandi atvinnugrein þar sem miklar tækninýjungar hafa orðið á síðustu árum. Þurrkun á þörungamjölu er orkufrekt ferli sem krefst þess að hugsað sé út í nýtingu hráefnisins. Til þess að ná aukinni stjórn á nýtingu hráefnis er massa- og orkuvægi sett upp fyrir þurrkun annars vegar á þangi og hins vegar þara. Það er framleiðsla mjöls úr klóþangi og hrossaþara. Að auki er áætlað magn af lofti sem notað er við þurrkunina. Hitastig og hlutfallslegur loftraki loftsins sem notað er til þurrkunar er notað til þess að greina orkunotkun og loftflæði í þurrkaranum. Þurrkhraði er notaður til þess að sjá hvernig varan þornar eftir því sem líður á þurrkferlið, en það getur sagt til um það hvernig ferlinu skuli stýrt. Þrýstifall yfir færiböndin er mælt og notað til þess að skoða hvernig loftið flæðir í gegnum þurrkarann. Með því að beita þessum aðferðum er hægt að skoða hvað má betur fara í vinnslunni og koma með tillögur að nýju verklagi og endurbótum á búnaði. Hitastigs- og rakanemar eru til staðar í þurrkferlinu og er staðsetning þeirra skoðuð með tilliti til þess hvort hægt sé að stjórna þurrkuninni út frá þeirra mæligildum. Einnig er staðsetning þrýstingsnema skoðuð ásamt því hvort það ætti að setja upp fleiri skynjara og jafnvel á öðrum stöðum og meta hvað vert sé að mæla.
Leiðbeinendur eru Sigurjón Arason, prófessor við Matvæla og næringafræðideild HÍ og Halldór Pálsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ.
Prófdómari er Dr. Björn Margeirsson, rannsóknastjóri Promens hf.