
Miðvikudaginn 16. apríl næstkomandi kl. 13 ver Hoda Thabet fyrstu doktorsritgerðina í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Vörnin fer fram í hátíðasal skólans og ber ritgerðin titilinn Women in Transition. Andmælendur við vörnina verða tveir af þekktustu sérfræðingum heims í arabískum kvennabókmenntum, þær miriam cooke, prófessor í arabískri menningu við Duke-háskólann í Bandaríkjunum og Marilyn Booth, prófessor arabískum og íslömskum fræðum við Edinborgarháskóla. Guðni Elísson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stýrir athöfninni.
Í doktorsnefndinni var einn helsti sérfræðingur Bandaríkjanna í arabískum bókmenntum, Roger M. A. Allen, prófessor emeritus í arabískum bókmenntum frá Pennsylvaníuháskóla. Leiðbeinandi var Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði og í doktorsnefnd ásamt þeim sat Gunnþórunn Guðmundsdóttir, dósent í bókmenntafræði.
Doktorsritgerðin fjallar um arabískar kvennabókmenntir og þátt þeirra í að brjóta af sér fjötra feðraveldisins í heimi sem þar sem konur eru ekki aðeins kúgaðar af körlum heldur verða einnig að takast á við styrjaldir og afleiðingar þeirra.
Bókmenntafræðilega snýst kenning hennar um nýstárlega beitingu hins háleita í arabískum kvennabókmenntum á síðari hluta tuttugustu aldar, einkum í skáldverkum Hanan al-Sjaík (e. Hanan al-Shaykh), Naúal El-Saddaúí (e. Nawal El-Saddawi) og Gada Samman (e. Ghada Samman). Hún skoðar hvernig höfundarnir snúa hinum hefðbundnu hugmyndum um hið háleita á hvolf og ögra þannig aldagamalli túlkun feðraveldisins.
Hoda Thabet er af írönskum uppruna og skrifar hún ritgerðina á ensku, en hún talar einnig og skrifar arabísku reiprennandi. Það má teljast óvenjulegt að doktorsritgerð um slíkt efni sé skrifuð við Háskóla Íslands. Þetta er einnig fyrsta doktorsritgerðin sem rituð er í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.