Clik here to view.

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands verður haldinn í Námu, sal Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 20. mars kl. 13:00 - 16:30.
Dagskrá
13:00 Setning.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
13:10 Ávarp.
Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands
13:20 ,,Í ver, í vísindi“.
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður og Ragnar Edvardsson, sérfræðingur, Rannsóknaseturs HÍ á Vestfjörðum
14:00 Kaffi
14:30 ,,Sjálfbær nýting auðlinda: landbúnaður og vistkerfi“.
Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi
15:00 ,,Til hvaða verka skulum við hvetja“.
Hilmar Bragi Janusarson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
15:30 Samantekt og fundarslit.
Fundarstjóri: Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.
Gestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig á vefsíðu Stofnunar rannsóknasetra HÍ. Skráningu lýkur 17. mars.
Image may be NSFW.
Clik here to view.