Hvenær hefst þessi viðburður:
20. mars 2014 - 18:00 til 23:59
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Háskólatorg, Litla torgi og stofum HT 101 og HT 300

Verkefnavaka Háskóla Íslands gegn frestunarpest og ritkvíða
Opið hús á Háskólatorgi og Litla sal fimmtudaginn 20. mars kl. 18:00-24:00
Verkefnavaka Háskóla Íslands gegn síðbúnum verkefnum, frestunarpest og ritkvíða.
Verkefnavaka verður haldin í annað sinn fimmtudagskvöldið 20. mars kl 18.00 til 24.00 á Háskólatorgi, Litla torgi og stofum HT 101 og HT 300. Verkefnavaka er viðleitni Háskóla Íslands til að koma til móts við nemendur sem haldnir eru frestunarpest og ritkvíða og til að hjálpa þeim að ljúka verkefnum en ekki fresta þeim. Einnig að benda nemendum á lausnir við vandamálin og rjúfa þá einangrun sem margir upplifa við úrlausn verkefna . Hugmyndin að Verkefnavöku er fengin frá Þýskalandi en hún var haldin þar fyrst árið 2010 að frumkvæði ritvers Evrópuháskólans Viadrian í Frankfurt. Sá viðburður þóttist takast einkar vel og í kjölfarið voru stofnuð alþjóðleg samtök um viðburðinn The internartional Long Night Against Procrastination og hafa verkefnavökur verið haldnar víða um heim.
Margir taka þátt í vökunni af hendi Háskólans. Má nefna að fulltrúar frá öllum fimm sviðum skólans verða stúdentum innan handar við að svara spurningum um skrif innan hvers sviðs, starfsfólk Bókasafns Menntavísindasviðs og Landsbókasafns- Háskólabókasafns, fulltrúi frá Kennslumiðstöð , náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar ritvera Menntavísinda- og Hugvísindasviðs
Dagskráin er fjölbreytt og eru stúdentar hvattir til að nýta sér þetta tækifæri, einmitt þegar líða fer undir lok vormisseris og mörg verkefni liggja eflaust fyrir.
Bóksala Stúdenta mun hafa opið til 20.00 á Verkefnavökunni.
Dagskrá
Kjörorð kvöldsins: Vinnum í náminu eina kvöldstund í góðum félagsskap – rjúfum einsemd höfundarins, gegn síðbúnum verkefnum, frestunarpest og ritkvíða
18:00 – 18:30 Litli salur, Háskólatorgi
Setning og kynning vökunnar – Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands setur verkefnavöku
18:30 – 20:00 Háskólatorg og Litli salur á Háskólatorgi
Skrifað á fræðasviðum – Fulltrúar fræðasviðanna fimm eru tilbúnir til skrafs og ráðagerða og leiðbeina þeim sem til þeirra leita:
•Skrifað á Félagsvísindasvið, Sif Einarsdóttir
•Skrifað á Heilbrigðisvísindasviði, Sigurður Guðmundsson
•Skrifað á Hugvísindasviði, Róbert Haraldsson
•Skrifað á Menntavísindasviði, Helgi Skúli Kjartansson
•Skrifað á Verkfræði- og náttúruvísindasvið, Ebba Þóra Hvannberg
Kynning á Turnitin – Sigurður Jónsson, Kennslumiðstöð HÍ
Skrif á ensku – Ásrún Jóhannsdóttir, Hugvísindasviði
Að skipuleggja sig í skrifum – Náms- og starfsráðgjöf HÍ
18:30 – 22:00 Háskólatorg og Litli salur á Háskólatorgi
Aðstoð við heimildaleit – Sjálfsmat í upplýsingalæsi, Word og APA-reglum – Starfsfólk Bókasafns Menntavísindasviðs og Landsbókasafns- Háskólabókasafns
Ritunarferlið frá byrjun til enda – Ráðgjafar ritvera á Menntavísindasviði og Hugvísindasviði veita góð ráð og ræða málin á öllum stigum ritunarferlisins
18:30-20:00 HT 300 – 3. hæð Háskólatorgs
Hópleiðsögn meistaranema
Hópur meistaranema á Menntavísindasviði hittist ásamt leiðbeinendum sínum, eins og þau hafa gert undanfarna mánuði. Leiðbeinendur koma vinnu nema í gang með stuttu innleggi í upphafi og aftur síðar um kvöldið. Öllum er velkomið að fylgjast með, sömuleiðis að greina frá eigin verkefnum líkt og fastir þátttakendur gera. Umsjón: Svanborg Jónsdóttir, Karen Rut Gísladóttir, Hafdís Guðjónsdóttir og Hafþór Guðjónsson.
18:30-20:00 HT 303 – 3. hæð Háskólatorgs
Skapandi skrif – Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Hugvísindasviði
19:30-20:30 HT 101 – 1. hæð Háskólatorgs
Aðstoð við skráningu heimilda, EndNote og APA-reglur – Vinnustofa Bókasafns Menntavísindasviðs, Landsbókasafns- Háskólabókasafns og ritvers Menntavísindasviðs
22:00 – 24:00 unnið í næði
Bóksala stúdenta á Háskólatorgi er opin til kl. 20:00 og Stúdentakjallarinn til kl. 01:00