Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Tungumál á torgi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. mars 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Nemendur með íslensku sem annað mál kynna tungmál sín á íslensku á lifandi hátt

Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda og námsbrautin íslenska
sem annað mál við Háskóla Íslands, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Íslenskuþorpið bjóða til skemmtilegs viðburðar á Litla-Torgi, hinni nýju viðbyggingu Háskólatorgs, fimmtudaginn 13. mars kl. 14.

Þar ætla nemendur með íslensku sem annað mál að kynna tungumál sín á íslensku á lifandi hátt. Gestum gefst tækifæri til spreyta sig á tungumálum víðs vegar að úr heiminum eins og rússnesku, kínversku, norsku, ítölsku, úkraínsku, þýsku, georgísku, dönsku, frönsku og sænsku og kynnast um leið fjölbreyttri menningu. Hvað er t.d. sagt á kínversku þegar einhver hnerrar?

Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Viðburðurinn er liður í Café Lingua, fjölmenningarlegri tungumálaherferð á vegum Borgarbókasafns Reykjavíkur sem stendur yfir í febrúar og mars. Boðið er upp á viðburð einu sinni í viku. Herferðin er ætluð öllum sem hafa áhuga á tungumálum, samskiptum og fjölbreyttri menningu. Auk ofangreindra aðila koma Bíó Paradís og Menningarmiðstöðin Gerðuberg að tungumálavettvangnum.




 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012