
Enn á ný hafa vaknað spurningar um vandamál og styrkleika beins lýðræðis í íslensku samfélagi. Ber stjórnmálamönnum að hlusta á vilja kjósenda? Hvaða máli skipta loforð gefin í aðdraganda kosninga eftir að ríkisstjórn hefur verið mynduð?
Rannís hefur undanfarið ár styrkt þverfaglegt rannsóknarverkefni á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands sem nefnist Hvað einkennir íslenskt lýðræði? Starfsvenjur, gildi og skilningur. Í ljósi nýlegra atburða og umræðna liðinna vikna hefur rannsóknahópurinn ákveðið að halda opinn umræðufund um lýðræðislega innviði samfélagsins. Á fundinum verður meðal annars reynt að varpa ljósi á hvaða skilning á lýðræði má greina að baki starfsvenjum í íslenskum stjórnmálum og stjórnsýslu.
Stuttar framsögur flytja:
Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar
Þorbjörn Broddason, prófessor emeritus í fjölmiðlafræði
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og miða má kaupa á www.midi.is