Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Námskynning í Menntaskólanum á Ísafirði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. mars 2014 - 11:00 til 13:00
Háskóli Íslands

Háskólar landsins verða á ferðinni um landið vikuna 10.-14. mars og kynna nám sitt og starfsemi fyrir verðandi háskólanemum á fjórum stöðum á landsbyggðinni. Auk þess kynnir Háskóli Íslands námsframboð sitt á fimmta staðnum. Kynningin er liður í samstarfi skólanna um Háskóladaginn.

Fulltrúar Háskóla Íslands svara spurningum áhugasamra um námsframboð, starfsemi skólans og þjónustu. Alls eru um 400 námsleiðir í boði við Háskóla Íslands.

Fimmta og síðasta kynningin fer fram í Menntaskólanum á Ísafirði föstudaginn 14. mars kl. 11-13.

Námskynningin er opin öllum áhugasömum.



 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012