
Skil þróunarsamvinnu og neyðaraðstoðar eru stundum óljós. Í fyrirlestrinum verður greint frá rannsóknum fræðimanna á ástæðum fyrir stuðningi opinberra aðila og frjálsra félagasamtaka til einstakra landa og neyðartilvika. Einnig verður fjallað um sjónarmið sem stuðst er við þegar samstarfslönd Íslands í þróunarsamvinnu eru valin og við útdeilingu styrkja til neyðaraðstoðar.
Jónína Einarsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands
Fundarstjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
Alþjóðamálastofnun stendur fyrir fjórum málstofum um þróunarmál og neyðaraðstoð í samstarfi við námsbraut í mannfræði við Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið. Málstofurnar verða haldnar í hádeginu á fimmtudögum í mars.