Hvenær hefst þessi viðburður:
6. mars 2014 - 16:00
Nánari staðsetning:
Hátíðasalur

Fimmtudaginn 6. mars nk. kl. 16 heldur dr. Ronald G. Sultana, prófessor
við Háskólann á Möltu opinn fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Heiti fyrirlestrar er:
Náms- og starfsráðgjöf, opinber stefnumótun og félagslegt réttlæti:
Sérstaða smærri ríkja
Í mörgum löndum er náms- og starfsráðgjöf orðin þáttur í opinberri
stefnumótun, sérstaklega þeirri sem snýr að mannauðs- og efnahagsþróun.
Opinberir sjóðir veita fjármagni í verkefni sem þeir telja að bæti þróun
starfsferils hjá einstaklingum og stjórnun þeirra á verkefnum sem koma upp
á starfsferlinum. Framfarir á þessu sviði komi öllum almenningi til góða.
Í fyrirlestrinum verður þessi afstaða gagnrýnd og þær forsendur sem hún hvílir á. Einnig verður rætt um hvernig náms- og starfsráðgjöf getur eflt félagslegt réttlæti á tímum nýfrjálshyggju. Þessi efni verða einnig skoðuð út frá sérstöðu smærri ríkja.
Kynning á fyrirlesara:
Ronald G. Sultana er prófessor í félags- og menntunarfræði við Háskólann á
Möltu, þar sem hann stjórnar Euro-Mediterranean Centre for Educational Research. Hann er höfundur margra greina og bóka um tengsl á milli menntunar og atvinnu/atvinnuleysis, og hefur staðið að rannsóknum á náms- og starfsráðgjöf bæði í Evrópu og í all nokkrum Arabaríkjum.
Sjá nánar um University of Malta
netfang: ronald.sultana@um.edu.mt