
Kaþólsk trú hefur verið lítt sýnileg í íslensku samfélagi frá því að lúterskri kirkjuskipan var komið um miðja 16. öld. Í dag eru áþreifanlegar minjar um íslensku miðaldaklaustrin fáar og minni um þau oft afbökuð eða gleymd. Í fyrirlestrinum verður greint frá nýhafinni rannsókn sem miðar að því að kortleggja og skrá minjar, gripi, örnefni, munnmæli og ritaðar heimildar um þau. Vonast er til að hægt verið greina umsvif þeirra hérlendis og áhrif á þróun og skipan stjórnarfars- og samfélagsmála fram að siðaskiptum. Rannsóknin hófst sumarið 2013 með leit að minjum í Hítardal á Mýrum og á Bæ í Borgarfirði. Greint verður frá niðurstöðum úr þessum fyrstu tveimur vettvangsferðum en þær skiluðu meiri árangri en vonir stóðu til í fyrstu.
Steinunn J. Kristjánsdóttir er prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands. Hún er með doktorspróf í fornleifafræði frá Háskólanum í Gautaborg og hefur undanfarin ár stundað rannsóknir á Skriðuklaustri og klausturmenningu hérlendis en einnig á kristnivæðingunni við upphaf miðalda.
Fyrirlestraröð Miðaldastofu um klausturmenningu á Íslandi og Norðurlöndum á miðöldum